Ástæða 364

Ástæða 364 fyrir því að losna við bumbuna mína: Þar sem ég hjólaði heimleiðis í gær tókst bumbunni minni að aflæsa símanum í vasanum, opna facebook, finna nokkurra ára gamla brúðkaupsmynd af fyrrum nágrönnum og tagga bæði mig og konuna mína á myndinni

(Algjör grundvallarmistök hjá bumbunni að tagga konuna mína líka. Ef hún hefði ekki hringt öskrandi í mig hefði ég líklega ekki hugmynd um þetta prakkarastrik enn)


Posted

in

by

Comments

Leave a Reply