siggimus vs the cows
-
Náttúrulögmálin
Æðisleg bók, mjög skemmtilega skrifuð og fyndin. Söguleg skáldsaga sem veit hún er bók, og minnir okkur reglulega á að heimildirnar séu ekki alltaf nógu góðar en að sjálfsögðu treystum við stórkostlegu innsæi höfundar
-
Esja
-
Eden
Auður Ava skrifar svo fallegan texta. Það er unaður að lesa bækurnar hennar
-
Af hverju?
Pabbi: „Varstu kannski að laumast í símann minn?“ Albert: „Af hverju heldurðu það?“
-
Vinur sem æfði handbolta kveður eftir heimsókn Albert: „Pabbi, viltu horfa á handbolta í kvöld, Ísland er að spila við eitthvað land“ Pabbi: „Grænhöfðaeyjar“ A, við vsæh: „Grænhöfðaeyjar! Það er rétt hjá Tenerife!“
-
Mánudagur
Mánudagasti mánudagur í mánudaga minni! Eftir rúm 11 ár á hinu illræmda Kjalarnesi hef ég loksins náð stórum áfanga í því að verða innfæddur! Ég var einn af þeim fjölmörgu sem fór útaf veginum í morgun og endaði í snjóskafli. Ég fór samt ekki útaf á milli Esjumela og Mosfellsbæjar eins og allir hinir. Onei,…
-
Útilega
Albert gerði mynd af okkur í útilegu sl. sumar
-
Skáld
Undirbúningur fyrir leikhúsferð, því leikgerðin verður frumsýnd fljótlega Kona sem vill verða skáld árið 1963, en veröldin leyfir ekki svoleiðis. Við sjáum hjá vinkonu hennar sem verður ólétt hvernig líf Heklu hefði getað orðið. Og skáldið kærastinn hennar er ásamt vinum sínum meira upptekinn af því að vera „skáld“ en að yrkja.
-
60 kíló
Loksins búinn með þær allar þrjár Þetta er svakaleg lesning, ótrúlegt afrek að sökkva sér svona ofan í þessa sögu og gera svo þennan þríleik sem er stórkostleg bæði á macro og micro leveli
-
Kvíði
Ég er ekki að segja að ég borði einhæfan morgunmat, en þegar Ance spurði af hverju ég yrði að fara í búð á aðfangadag sagði ég „ab-mjólkurkvíði“
-
Traktor
Skemmtilega skrifuð, laumar inn sögu Úkraínu, sérstaklega fyrir og í seinni heimsstyrjöldinni
-
Saman
Ég er ekki að segja að ég hafi verið með slæma magakveisu í gær, en það fóru 3kg og ég er með harðsperrur í brjóstkassanum Var búinn að liggja náfölur í rúminu í 14 tíma (utan þess að staulast reglulega á snyrtinguna) þegar Ance skreið uppí og játaði sig sigraða Einhverjum klukkutímum síðar, þegar við…