Hundaskítur

Það var farið að dimma í gærkvöldi þegar Sandra kom með okkur Húgó.

Við erum komin kannski 50 metra þegar hún hleypur upp á litinn hól, stoppar og lítur niður: „Fokk! Ég steig í hundaskít!“

Pabbi: *reynir að sjá barnið í myrkrinu* „Andskotinn! Hvernig fórstu að þessu?!?“

Sandra: *lyftir fætinum, kíkir undir, grettir sig*

P: ??

S: *strýkur fingrinum undir skóinn og skoðar mjög vel*

P: „HVAÐ ERTU AÐ GERA?“ ??

S: *hnusar af, grettir sig, stingur fingrinum í munninn og sleikir*

P: ??

S: „Þetta er Nutella!“ ??

?? Ég hef aldrei verið svona stoltur ??


Posted

in

by

Comments

Leave a Reply