Albert situr inni í stofu að leika sér, aleinn: „Æma bits! Æma boss!
Æma bits æma boss æma bits æma boss!“
Tag: Albert
-
-
Fréttir: „… með áherslu á að kennsla raskist sem minnst“
Albert: „Rass kysst!“
*flissar í 10 mínútur*
-
Á leikvelli með fjögurra ára pjakk. Taktföst tónlist í fjarska.
Albert: „Eridda begæ?“
Pabbi: „Begæ? Ég veit ekki hvað það er?“
P:
P:
„Me… meinarðu Bad guy?“
-
Litli gluggaþvottamaðurinn
Litli gluggaþvottamaðurinn Litli gluggaþvottamaðurinn Litli bílaþvottamaðurinn -
Þegar sófinn er upptekinn og pabbi þarf að sitja á gólfinu
Mikilvæg samkoma -
Pabbi: „Ég er í sjokki!“
Albert: „Ég er í sokki!“
P: „Nei, þú ert einmitt ekki í sokki! Þú ert ekki búinn að fara í einn einasta sokk í allan dag!“
-
Albett: *klárar morgunmat* „Ég ætla að vaska upp!“
Pabbi: „Frábært!“
Líka pabbi: *hleypur og bjargar uppvaski gærkvöldsins frá því að vera „vaskað upp“ aftur*
-
Pabbi: „…ég fer niður og set grautinn þinn á disk“
Albert: „Disk? Pabbi, það á að segja skál!“
-
Þenx
Telma (8): „Pabbi, hvernig skrifar maður þenx?“
Pabbi: *lítur upp, opnar munninn…*
Albert, nýorðinn fjögurra ára: „i eff i ú!“
-
Albert: „Viltu koma út á leikvöllinn?“
Pabbi: …
A: „Viltu koma út á leikvöllinn, já eða nei?“
P: „Nei, ekki núna“
A:
A: „Viltu koma út á leikvöllinn, já eða já?“
-
Út að borða
með Albert
Útsýnið, maður lifandi! Glaður bíll Aðalréttur Eftirréttur Er hann að þykkna upp?