Albert leitar að stóru systur: „Hvar er Sandra?“
Pabbi: „Hún ætlar að gista hjá vinkonu sinni í nótt!“
A: „Ætlum við ekki að eiga Söndru lengur?“
Albert býður í pikknikk úti á palli. Kemur svo út með „vatn og samlokur“
Ekki að ég vilji vera að kvarta, en ef einhver beindi byssu að mér myndi ég kannski byrja á að nefna að brúsinn er tómur og samlokan tómt, gaddfreðið brauð

Morgun. Pabbi og Albert niðri. Borða hafragraut
Stelpurnar uppi. Læti.
A: *leggur frá sér skeiðina* „Ég ætla upp að segja hvað er í gangi!“
A: *plomp plomp plomp plomp* „HVAÐ. ER. Í. GANGI?“