Sandra: „Má ég baka?“
Pabbi: „Jájá“
Albert: „Má ég hjálpa baka?!?“
S: „Æi nei, síðast borðaðirðu hveiti!“
Pjakkur safnar saman öllum stólum í húsinu.
Pabbi: *sitjandi á gólfinu við tölvuna* „Æ!“
Pj: „Það er að koma æfing!“ (sýning)
Pa:
Pj: „Stundum viljið þið horfa, og stundum viljið þið ekki horfa“
Pa: „Já“
Pj: „Er núna stundum?“
Fimm mínútum síðar er „æfingin“ hafin, og pjakkurinn syngur frumsamið lag á einhverju sem gæti næstum verið enska.
Endar á að öskursyngja: „Momí, æ nítúpíííííííí!!“
„Pabbi! Þú mátt ekki sjá mig þegar ég er að stelast!“
Ég bauð honum að láta mig vita þegar ætlar að stelast
Hann hugsaði málið í smástund og kinkaði svo kolli
Eftir að suða heilmikið í og takast loksins að sannfæra pabba um að koma út að leika tekur Albert sér 20 mínútur í að klæða sig til að fara út með pabba.
Pabbi: „Jæja, ertu tilbúinn?“
Albert: „Ég þarf að pissa. Uppi“
… 5 mínútur…
P, niðri: „Hvernig gengur að pissa?“
A: „Illa. Ég ætla fyrst að leika mér í Barbí og síðan að pissa“
P:
A: „Ertu að hlæja?“