Category: pics
-
who the fuck
do you think you are?
asks pj in her underpants 😐
everybody now:
who the fuck do you think you are
get out of my hair
who the fuck do you think you are
comin’ round here
who the fuck who the fuck
who the fuck do you think you areget your comb out of there
combin’ out my hairi’m not like other girls
you can’t straighten my curls
i’m not like other girls
you can’t straighten my curls
no!who the fuck you tryin’ to be
get your dog away from me!
what the fuck you doing in there
get your dirty fingers out of my hair -
the knife
while not their best song, marble house was the only one he could find 🙂
ps: this sounds like a great idea 😀
-
maí 2001
gott kaffi!! [26 maí 2001]
í tilefni heimsendis (sjá enskt alías dagbókar, siggamussins nennir hreint ómögulega að yfirsetja…) rauk siggimus til & fjárfesti í mokkakönnu mikilli
hver vill ilmandi nýtt siggamussins espressó?
er siggimus kannski annasigga? [25 maí 2001]
er siggamus var í hringt & önnusiggu umbeðið í triljónasta skipti, tók siggimus að spöklera hvort hann mögulega ætti til eitt alteregóið ellegar klofinn persónuleikann enn & aukreitis
‘jú, það er hún,’ svarar siggimus sigurviss
‘nei’
‘víst er þetta annasigga! þekkiru önnusiggu ekki?’
‘ne-ei, siggimus er ekkert annasigga,’ sagði hún, ekki alveg eins sikker & í fyrra skiptið
‘nei!’
‘akkuru eru þá allir að hringja í siggamus & kalla siggamus önnusiggu?’
frauka átti engin svör við stórum spurningum siggamuss
en sú stærsta hangir enn í loftinu & suðar eins& fiskifluga: sannar þetta eitthvað?
enn eykst hróður siggamuss [24 maí 2001]
siggamus hefir nálgast úkraínskur skáldsagnahöfundur & beiðst aðstoðar við verk sitt
siggimus mun ljá englum hans íslenskar raddir
pínu tjútt & fagn [23 maí 2001]
til að halda pínupons uppá daginn bauð siggimus nokkrum vel völdum drykkjusvolum í slotið & drakk með þeim øl
fjandakornið að andrea j eigi rassgat í ólapalla eða dodda litla!
samt lukkaðist nú siggamusi að sýna nokkra fornfræga takta á gólfinu dansins
meira [23 maí 2001]
ekki að það eigi að koma nokkurri lifandi sálu á óvart sem hefir á siggamus heyrt minnst, en siggamusi var boðin ný vinna
nú var siggimus alsæll í gömlu vinnunni, en þessi sona leitaði hann uppi & potaði í hann & kitlaði hann & sagði viltu vera memm með voða getnó röddu, svo siggamus brast þrek til að berjast í mót
siggimus í klípu & illt í efni: hvort skal velja djobb með vaðirí í leðju uppað eyrum & vöðvaglenningum & skóflusveiflingum ellegar puntudjobb sem þarf að vinna í jakkafötum eins& mörgæs?
siggimus fer í bað & mörgæsabúning í júlí
hallelúja! [20 maí 2001]
bjór er svo sannarlega mjöður ossra guðanna
þjóðhátíð í norge & siggimus eykur við frægð & frama í búlgaríu [17 maí 2001]
loksins & eftir langa mæðu heldur noregur upp á þjóðhátið & siggimus verður heimsfrægur um alla búlgaríu yfir nótt
það verður þó í allri sanngirni að takast fram að þetta hefir staðið til um skeið hjá norðmönnum & kemur því ekki öllum á óvart
siggimus hefir einnegin bakvið tjald plottað innrás í búlgaríu í samkrulli við hátt skrifaðan umba sinn þar (sem án tvímæla ber af öðrum austurevrópuagentum siggamuss)
nemahvað, hannibal hafði það af að komast á búlgarskt prent í þeirri mikilsvirtri & hátt skrifaðri púbblíkasjón sem starshel er, en því hefir einmitt hlotnast þessi mikilsvirtingur & háttskrifaðingur fyrir að birta í sí & æ hverja brakandi snillina á fætur annarri á sviði húmors & satíru í þau heilu 50 ár sem það hefur komið út (þrátt fyrir hingaðtil skammarlega lítið af siggamusi)
siggimus er stoltur af að hafa þarna slegið flugu í höggi: hópur nóbelsverðlaunahafa & annarra mikilsverðra manna slóst í þessu í för með siggamusi
til marks um óefanlega snilld siggamuss má þess til gamans geta að ritstjórinn rauk í ofboði í næsta síma við það að fá söguna í hönd & hringdi á flogakenndan hátt í siggamuss agent & beiddist þess auðmjúklega að siggimus tæki þátt í samkeppni (kompetisjón) þeirri frægri sem þeir aleko 2001 kjósa að nefna
fyrir listræna hönd siggamuss, þáði agent snimmendis. meira seinna
höfundarlaunin, heilar 250 spírur ganga til að fjármagna væntanlegt safn siggamuss, siggimus eum
langi yður að rifja upp etv ryðgaða búlgörsku með stækkunargleri, býður siggimus yður að finna jarteikn þar um. siggimus hefir fyrir yðar haganleiks merkt við þar sem stendur siggimus & ísland, & aftur þar sem stendur hannibal er rauð lína
allir vilja siggamus [14 maí 2001]
allir & frændi hans virðast nýverið hafa fundið hjá sér ódrepandi áhuga til að fá siggamus til að ritstýra einkurum skollanum fyrir sig
siggimus fór í vellukkað viðtal um að ritstýra dóti
meira innan skamms
lætur á kenningu reyna [12 maí 2001]
í tilraun til að láta á kenningu nýsmíðaða (‘nýja kenningin um bjórdrykkju’) reyna gerir siggimus heiðarlega & að sumu leyti lukkaða tilraun til að halda út að góna á þau ósköp sem eru júróvísjón með því að drekkja um leið sem flestum af skynfærum sínum í freyðandi øli
siggamussins uppáhaldsi gekk sem von er & vísa vel
mumiy troll lenti í flottu 12ta sæti með lag sem hljómar býsnin öll eins& megnið af þeirra mússík (utan engilsaxneskt ljóðið sem varð öðrum keppendum fótur um fjöt), en á einkurn vladivostoskan máta komast þeir kauðar upp með þetta eins& glæponar, ekki svo ýkja ólíkt prata vetra/brainstorm
víst var ingjaldur á rauðum skóm & smíðar kenningar um bjór [11 maí 2001]
siggimus slær stefanv & óskar í för með síns & heldur sem leið liggur að berja augum nýjasta hugverk hugleiksara, víst var ingjaldur á rauðum skóm. jóhanns rumpur mikla vekur lukku
heldur þvínæst beinustuleið að næsta bjór, á hverri beinustuleið iluks nokkur slæst í för
setið á rökstólum & kenningar um galdurinn sem liggur í síðustu 2-3 sopunum af bjór no. 2 fram settar; þetta er bjórinn sem gerir karlmann kenndan & lætur karlmann langa í meira ljúft øl & lauslátara kvenfólk & fleira ýmislegt ílanganlegt
komust kumpánar ískyggilega nálægt því að smíða haganlega gerða kenningu sem kemur til með að breyta hugsanagangi vísindasamfélagsins eins& þið þekkið það í umræðum um hvort frávik eins& að drekka tröllabjór (1l) eða kellingabjór (0,33l) fokki upp bjórkarmanu sem verður tvímælalaust að vera í fullu jafnvægi við umheim til að glaðar stundir geti ást & geti valdið katastrófum á borð við þá að bjórdrekkandi missi ráð & rænu á undan áætlun ellegar að hann upplifi þá verstu martröð bjórdrekkjanda: að finna aldregi á síns [hér sé hrollur]
ekki fara langt
siggimus & félagar í kenningasmíð hafa hafist handa við smíð þakkarræðna þeirra sem haldnar verða við móttöku nóbelsverðlauna
kaffi & krossgáta [6 maí 2001]
siggimus sýnir & sannar að hann hefir engu gleymt
svolgrar í sig pressukönnu af eðalkaffi & rumpaði af krossgátu á undir sex sigur rósar lögum af ágætis byrjun
fann mas villu í krossgátu!!
tsk! tsk! skammastín lesbók!
amæli & tinnitus [5 maí 2001]
dj óli palli virðist hafa smitað siggamus af tinnitus, sem er kannski mússíggurinnar virði? allt einkuddnveginn orðið nefmælt, meiraðsegja vatn að sjóða
1 árs amæli exóduss siggamuss frá landi elds&ísa fejrað með timburmönnum undir meðallagi & heimsókn í ikea. siggimus mælir svo um að aldrei skuli farið í ikea án timburmanna ellegar tinnituss meðferðis
einkurir annars ágætir vöðvar í siggamussins hálsi virðast hafa farið ílla útúr dansæfingu
barbíkjú [4 maí 2001]
jóhann býður til barbíkjús
siggimus 2001 hefir sína regnhlífina magnaða meðferðis til v&v
horfði illilega á kauða sem gerði sín stykki á mogwai eftir trúarlega upplifun þá sem voru tónleikar
siggimus þvínæst kíkir á 22 með stefanv í halarófu & dansar sem 3 óðir menn væri í 2 klst
siggimus segull? [3 maí 2001]
siggimus orðinn segull á fögur sænsk fljóð?
etv koma tvær til!!
siggimus á góðar stundir íhugandi sænska haremið siggamuss tilvonandi
sænsk frauka slæst í hóp með siggamusi! [2 maí 2001]
siggimus rétt búinn að taka upp 3 stöff þegar kemur bara sænskt fljóð & slæst í hóp!!
u, hvort ætli sé betra: að siggimus misþyrmi sænsku ellegar þegi ella?
sumsé, ekki vera hissa ef sænskt fljóð svarar í símanr siggamuss & alsekki örvænta
siggimus flytur [1 maí 2001]
loks flytur siggimus af stofugólfi í slott (altoflangtsíðansíðast!). pakkar saman sínu stöffi & flytur til reykjavíkur í amk 4 mánuði
á þíns ísskáp að gefa siggamusi? eða lítinn & lausan bakaraofn?
ný adresa:
siggimus
[defúnkt!]
101 reykjavíksiggimus býður nýja nágranna, olikr, korlyx, stefanv, iluks &fl, velkomna & lofar eðalkaffi fyrir kurja heimsókn
siggimus vill nota þetta tækifæri & vettvang & bjóða sitt gamla & heittelskaða símanr velkomið heim aftur eftir útlegð í höndum stefanv. allir saman nú: XXX XXXX velkomið heim aftur!!
siggimus syndir um af yndi í því litla mússíggi sem hann er með nú þegar & getur hlýtt á til friðs
…mmm, siggamussins mússígg…
-
apríl 2001
skundað á þingvöll [29 apríl 2001]
& heit treyst hægri vinstri
krummunnar & daníelsins & árórunnar bjóða siggamussins með í smárúnt til þingvalla
sumbl [28 apríl 2001]
boði jóhanns um sumbl tekið með þökkum
sumblað fram eftir morgni með skúla & jóhanns & valdísi & önunnar
doddi litli spilaði fína mússík sem var skemmtileg tilbreyting frá píkupoppinu á nelly’s
siggimus flytur! [27 apríl 2001]
þökk sé stefanv (sem er hetja), hyggur siggimus á flutninga í bráð!
vill einkur lána siggamusi ísskáp?
eða sófa sem virkar?
hvað með ofn?
(u, sona til að baka dót með)
höfnun! [23 apríl 2001]
siggamusi hafnað sem skáldi!!
hrmpf! en hvað vita einkurir búlgarskir kjánar sosum?
siggimus kominn með umba! [22 apríl 2001]
siggimus er kominn með umba, sem berst eins& ljón fyrir framgangi siggamuss & gjörir veg hans sem mestan á alla kanta. reynir að troða í vinnu & koma skáldskap á framfæri
nú er hannibal sumsé líka til á búlgörsku & verður boðinn fjölmiðlum í þeirri mynd. siggimus vinnur að því að birta þessa útgáfu líka hér, jabbel opna búlgarska deild á vef siggamus? ha? væri þaðiggi gaman?
sumar!! [19-22 apríl 2001]
til að halda uppá sumarkomu fór siggimus útúr bænum & hafði með sér famílíuna alla. gengið í kerið & mallað í potti & drukkinn bjór & the glenlivet
ljúft
fluga + útitekt [17 apríl 2001]
siggimus sá flugu!!
& hélt áfram að verða útiteknari & útiteknari. hvað er með þetta veður??!? eriddiggi ísland eða hvað?
lukkaðist loks [16 apríl 2001]
önnur tilraun til að sjá lalla johns lukkaðist svona skríkjandi vel hjá siggamussins. hafði með sér stefanv sem endranær & iluks sem eldaði gúllassúpu úr nautahakki fyrst & gaf öllum
myndin náttúrla svínvirkar
fjallganga [15 apríl 2001]
siggimus klifraði næstum uppá fjall
náði að beiðast undan þeirri bón siggaf að klifra uppá esjuna sökum bágs knés. fengu kumpánar sér í staðinn spásítúr niðrí elliðárhólma & spjall í kaupbæti fyrir lítið
hananú! [11 apríl 2001]
á dauða kjúklings átti siggimus von en ekki tralli!
hitti stefanv, jds, skara & bjössa. ágætt bara
enn & aftur fyrirspurt [11 apríl 2001]
‘halló! viljiði plís segja siggamusi meira um djobbið, plís?’
svar við svari svars [11 apríl 2001]
‘við gera próf fyrir siggamus. svo við ?????? tala’
næstum gengið [11 apríl 2001]
eftir ævintýralegan flótta af galeiðu gærdagsins getur siggimus næstum gengið. jafnar sig smámsaman eftir því sem álíður rólegum degi
þræll [10 apríl 2001]
siggimus hnepptur í þrældóm
en brúkar tækifærið & verður útiteknari & útiteknari
vann mas á stuttermabol í 15 mín
nánar [9 apríl 2001]
að því er gefur að skilja á informanti siggamuss (díp þrót) virðist sem siggimus hafi óvart sótt um einkura ritstjórastöðu yfir einkurum áranum hjá einkuru vikulegu dagblaði sem heitir kapital í búlgaríu
enn fyrirspurt/svar svars [9 apríl 2001]
‘u, áðuren siggimus pakkar draslinu & kaupir flugmiða vill hann kannski vita kurjum áranum hann á að ritstýra í búlgaríunni, ha?’
svar við fyrirspurn [9 apríl 2001]
heyrðu! siggimus sótti barasta óvart um einkura ritstjórastöðu í yfir einkurum áranum í búlgaríu
‘kunar kemur siggamussins til búlgaríu, plís?’
skvík!
beibin fundin [8 apríl 2001]
beibin sem siggimus leitaði að 9. febrúar fundin!
hafa líkast til aldrei í breiðholtslaug komið, en þeim mun oftar í árbæjarlaug þar sem þær glenna sína bossa & dilla sínum brjóstum á einkar lystaukandi máta
íslenski draumurinn [7 apríl 2001]
sá loksins íslenska drauminn
stóð undir væntingum & vel það. áfram íslenski draumurinn
fyrirspurt [4 apríl 2001]
sendir emil til að fyrirspyrja um djobb
vinna! [3 apríl 2001]
slóst í för með jónasi, gústa gamla & gumma í baráttunni við ljót hekk reykjavíkur
athyglisvert að sólbrenna í dag, en verða úti í kafaldsbyl daginn eftir (næstum)
ú á ljót hekk!
næstum í bíó [2 apríl 2001]
tilraun til að sjá lalla johns í bíó klikkaði eilítið þarsem stefanv meðreiðarsveinn var hálfsofandi þegar siggimus mætir til að týna hann upp
ekki síst stuð fyrir siggamus sem óð eld & brennistein stígvélslaus til að komast
fréttir af starfi [2 apríl 2001]
einkur í soffíu, búlgaríu að leita að siggamusi í vinnu. þarf að kunna ískensku & ensku
-
mars 2001
viskí? [29 mars 2001]
nokkuð viskí handa siggamusi einkur? ha?
jóalingur í imbanum!! [29 mars 2001]
hah! jóalingur gómaður í imbanum með lekkera leðurderhúfu & yndislegt yfirvaraskegg
hehe
flensa guðanna [28 mars 2001]
siggimus rankar við sér af rænuleysi af völdum flensu aldanna!!
drap sírkabát 72 stundir með því að þjást af höfuðverk, beinverk, hita & storknum hálsi milli þess sem hann annaðhvort svitnar af áfergju eða skelfur sem hrísla í stormi
en hver vinnur? auðvitað siggimus!!
liggaliggalá!!
áfram áfram áfram siggimus!!! þíns vinnur þennan leik!
annir [19 mars 2001]
sjúkraþjálfun, stimpl, ný vinna (takk siggi f!) & flúið frá annarri, & það með fyrstu flensu siggamuss í 8 ár á bakinu!
áfram siggimus! nú er bara að batna & fara að vinna!
siggimus sér um kosningar [17 mars 2001]
siggimus verður af degi heilags patrex sökum lýðræðisástar sinnar & áráttu. lét munstrast til að hafa umsjón með kosningum um flugvöll nokkurn & fjarlægð hans úr reykjavík
súpa í brauði! [14 mars 2001]
siggimus lætur fornan æskudraum rætast & fjárfestir í brauði með súpu inní
loks lætur siggimus af verða & skálmar upp tröppur að svarta kaffinu & bestillir þennan víðfræga rétt. sko, ef þú ekki vest það, skera þau kollinn onaf risastórri brauðbollu & moka gumsinu innanúr & pota síðan súpu í staðinn
nú getur siggimus dáið sælli en hann hefði getað dáið í morgun
& já! súpan var ekkert vond. sona bolognese súpa. & so var skolað niður með vikked espresso
en mússíkín maður lifandi!! músík er ekki rétta orðið. spænski rannsóknarrétturinn hafði getað brúkað þennan ófögnuð við iðju sína í denn
hvað á þetta annars að þýða? kurt sem siggimus kemur er spiluð mússík af hinu ílla! frá billí ósjen til billí dsjóel. einkur að fyrirsynju að vekja athygli siggamuss á því að mogwai sé góð hljómsveit?
mogwai [13 mars 2001]
voff
einn besti konsert sem siggimus hefir til dags upplifað. þessir litlu skosku skrattar geta búið til hljóðvegg sem jafnast á við fjallið sem varð úr hárunum úr halanum hennar búkollu
þeir byggja upp í rólegheitum, verða þéttari & þyngri þartil siggimus nær alsælu. eftir 5 mínútur þar, rétt áður en siggimus ætlar að springa úr gleði, rumpa siggamussins menn græjunum barasta upp í 11
& eru þar í kortér
[drúpum höfði í lotningarfullri þögn stundarkorn]
trúarleg upplifun
pjes: æ, lagið þarna er líkastil á velsku. sungið af sitjandi velskmönnum með húfur
sett í stellingar [12 mars 2001]
setið við & mogwai diggað. mest young team & rock action, sem eru nýkomnar í siggamuss hendur, sko
jibbí!
daginn eftir [10 mars 2001]
úff
óforvarandis djamm [9 mars 2001]
seint um kveld hringir telefónn & ómþýðri röddu býður jóhann siggamusi að ganga til liðs við sig, valdísina & önnuna eins& 1 kvöldstund. í ljósi seinleika úrsins (gvido langt genginn í 11), var siggimus agnarögn hikandi, þurfandi að ferðast bæjarenda í millum með áætlunarbílum þartilgerðum, en sló til um síðir & átti að lokum ljúfa kvöldstund undir síttaðaftanmússígg kompíleraðri af jóans
tilraunir siggamuss til að ganga hægt um gleðinnar dyr mæta þeir tilraunum jóalings til þess að klára viskí & konjak sem fyrst
misst af kusu ? [6 mars 2001 b]
það var ekki auðvelt, en siggamusi lukkaðist með þumalskrúfum loks að fá einkurn með síns á gaukinn, þarsem benni var að spila með kusunni sinni. siggimus eins& fræga fólkið alveg bara á gestalista!
heyrðu! tafðist oggupínupons hjá skúlalingsins & missti :/ af benna & kusu, en sá sein & suð
fraukan í sein söng ‘lífið er algjör tussa/þegar þú ert hlussa’ í löngu tímabærri ádeilu á tískuheiminn
suð er flott, en halló undirtónar, lófæ?!?
siggimus biður benna forláts. innilega
strætisvagnaraunir [6 mars 2001 a]
á leið heim úr næstsíðasta bakskólanum sínum setti siggimus strætómiðann óvart í skiptimiðaskúffuna!! & til að bæta gráu ofaná svart bað hans þvínæst um skiptimiða
fát kom á ökumann bifreiðarinnar við atburðinn, en hann náði þó að jafna sig nægjanlega til að skila báðum farþegum heilum á húfi í mjóddina
krummakrumm [5 mars 2001]
á einni af heilsubótar-en-af-&-til-líka-myndatöku-göngutúrum síns um elliðaárdal rak siggimus auga í heilan helling af krummum útumalt! siggimus náði að telja upp í 13 mismunandi krumma á innan við mínútu. víst voru fleiri krummar á sveimi, en siggimus mundi ekki hvaða númer kom næst & fannst heldur líka alveg nóg að sjá 13 krumma sona útumalt. siggimus var að auki á kafi í önnum að forða síns & fara með særingar til að komast hjá því að upplifa stuttan leikþátt unninn uppúr ágætri kvikmynd a. hitchcocks um bíbí.
hvað skyldi annars þýða að hitta 13 krumma í hverju horni?
rip [4 mars 2001]
þá er það orðið opinbert. minna & siggimus eru ei meir. hvíl í friði ?
-
febrúar 2001
múm & slowblow!! [27 febrúar 2001]
trallalla!! siggimus, skúli & stefanv herja á gauk & berja augum einkura þórunni sem hljómar pínu eins& jewel & so slowblow! & múm!
dúndur! mega! áfram slowblow & múm!!
leika við jóa & stebbaling [24 febrúar 2001]
fer & leikur við stebbaling & jóa kút á nelís & næstabar & 22. jóa gert tilboð á 22, einkur kall sem langaði ógeðsla mikið að dansa við’ann
valis gerir fönix [23 febrúar 2001]
siggimus leikur sér við valis, & fiktar ponsu þartil vindós týnir c: d: & e:
ekki gott. panikk!
losað um panikk með aðstoð ra, sem er náttúrla snilli
c: straujað & valis fær meallt míklu betra en vantar smá pínupons ?
allur póstur frá 15. des til 15. feb týndur & trölli gefinn
ekki vera feimið við að senda sigga afrita af öllum flottu póstunum sem hann gerði þá, ha?samt smá gott? valis er náttúrlega orðið monstur miðaðvið kuddnin það var
vonlaust kaffihús [20 febrúar 2001]
önnur tilraun til að nota bakaríið í mjódd eins & kaffihús, svo siggimus þurfi ekki að fara niðrí bæ. vita vonlaust. bakkelsið er sosum í lagi, en þetta var ekki espresso fyrir túkall. svo örlar ekki á stemmningu þarna… siggimus er dæmdur til að fara í bæinn til að skrifa
malkmus [16 febrúar 2001]
siggimus fór með stebbaling & sá malkmus, fyrrum pavement hetju á gaukástöng. ekki vondur kall, enda kall með mus í nafninu sínu
bak tú skúl [13 febrúar 2001]
bakk tú skúl, eða þannig. siggimus munstraður í bakskóla! lærir að vera með bak
hvar eru beibin? [9 febrúar 2001]
fór í sund. marineraði ponsu í potti. akkuru er siggimus sá aleini undir 60 í sundi á daginn? hvar eru beibin? siggimus vill sjá alvöru brjóst & rassa, ekki fyrrverandi brjóst & rassa
myndir tilbúnar! [8 febrúar 2001]
siggimus setti loksins stórkostlegar myndir úr ferðinni í albúm!! vinsamlegast hringið & pantið sýningu í síma
dagur í tvælæt sóni [6 febrúar 2001]
var búinn að steingleyma pin-númeri sökum lítils brúks. pantaði & fékk sent frá banka. geymdi á skrifborði yfir nótt. vaknaði morguninn eftir & hafði dreymt að ég opnaði bréfið! fann bréfið, opnaði & upplifði svaka dejà vu. siggamus dreymdi mas rétta númerið. nananana
þarf að prufa aftur með vísameðvitaði róninn [5 febrúar 2001]
siggimus í kjörbúð, í biðröð með brauð. kall fyrir framan snýr sér við, dæsir & segir “sona er að vera róni!” & indíkerar 8 flöskur af kardímommudropum í fangi sér. siggimus flissar & samsinnir. róni bætir við “& það er ekki eins & maður geti stolið þessum fjanda! þjófavörnin fer alltaf í gang…”
fór & hitti bjössa geðveika á kaffitári, kringlunni. fílaði skiljanlega söguna um rónann í tvö spöðvoff!! [3 febrúar 2001]
fór & hitti sigga f & egil ax hjá egils. drukku eins & 3 svín hver. svifu svo um næturlíf reykjavíkur reyrðir á bak óminnishegrans ógurlega. allar tillögur eða getgátur um möguleg ævintýr siggamuss umrædda nótt voða vel þegnar. siggimus veit núþegar: kolla, 22 & sirkús, takk æðislega
-
janúar 2001
skúlalingur & öllarar [30 janúar 2001]
fór & hitti skúlaling yfir tveimur öllurum á mann sem urðu þrír í viðbót á nellís :/ tralala!
vardas diena [25 janúar 2001]
siggamussins nafnadagur í latvija! allir fóru á vagners & fengu sér dubultaja espresso í tilefni dagsins & bugtuðu sig & beygðu honum til heiðurs. svaka stuð!
forsaga
þegar sagan hefst, er siggimus tiltölulega nýkominn úr himnesku ferðalagi um austur evrópu & mest um lettland, sem er bara gott
síðan búinn að fokka sér í tvo mánuði (& gera nýjan vef!!) & fá í bakið & drasl
sumsé:
atvinnu- & heimilislaus aumingi sem er ekki einusinni með hor