apríl 2001

skundað á þingvöll [29 apríl 2001]

& heit treyst hægri vinstri

krummunnar & daníelsins & árórunnar bjóða siggamussins með í smárúnt til þingvalla

sumbl [28 apríl 2001]

boði jóhanns um sumbl tekið með þökkum

sumblað fram eftir morgni með skúla & jóhanns & valdísi & önunnar

doddi litli spilaði fína mússík sem var skemmtileg tilbreyting frá píkupoppinu á nelly’s

siggimus flytur! [27 apríl 2001]

þökk sé stefanv (sem er hetja), hyggur siggimus á flutninga í bráð!

vill einkur lána siggamusi ísskáp?

eða sófa sem virkar?

hvað með ofn?

(u, sona til að baka dót með)

höfnun! [23 apríl 2001]

siggamusi hafnað sem skáldi!!

hrmpf! en hvað vita einkurir búlgarskir kjánar sosum?

siggimus kominn með umba! [22 apríl 2001]

siggimus er kominn með umba, sem berst eins& ljón fyrir framgangi siggamuss & gjörir veg hans sem mestan á alla kanta. reynir að troða í vinnu & koma skáldskap á framfæri

nú er hannibal sumsé líka til á búlgörsku & verður boðinn fjölmiðlum í þeirri mynd. siggimus vinnur að því að birta þessa útgáfu líka hér, jabbel opna búlgarska deild á vef siggamus? ha? væri þaðiggi gaman?

sumar!! [19-22 apríl 2001]

til að halda uppá sumarkomu fór siggimus útúr bænum & hafði með sér famílíuna alla. gengið í kerið & mallað í potti & drukkinn bjór & the glenlivet

ljúft

fluga + útitekt [17 apríl 2001]

siggimus sá flugu!!

& hélt áfram að verða útiteknari & útiteknari. hvað er með þetta veður??!? eriddiggi ísland eða hvað?

lukkaðist loks [16 apríl 2001]

önnur tilraun til að sjá lalla johns lukkaðist svona skríkjandi vel hjá siggamussins. hafði með sér stefanv sem endranær & iluks sem eldaði gúllassúpu úr nautahakki fyrst & gaf öllum

myndin náttúrla svínvirkar

fjallganga [15 apríl 2001]

siggimus klifraði næstum uppá fjall

náði að beiðast undan þeirri bón siggaf að klifra uppá esjuna sökum bágs knés. fengu kumpánar sér í staðinn spásítúr niðrí elliðárhólma & spjall í kaupbæti fyrir lítið

hananú! [11 apríl 2001]

á dauða kjúklings átti siggimus von en ekki tralli!

hitti stefanv, jds, skara & bjössa. ágætt bara

enn & aftur fyrirspurt [11 apríl 2001]

‘halló! viljiði plís segja siggamusi meira um djobbið, plís?’

svar við svari svars [11 apríl 2001]

‘við gera próf fyrir siggamus. svo við ?????? tala’

næstum gengið [11 apríl 2001]

eftir ævintýralegan flótta af galeiðu gærdagsins getur siggimus næstum gengið. jafnar sig smámsaman eftir því sem álíður rólegum degi

þræll [10 apríl 2001]

siggimus hnepptur í þrældóm

en brúkar tækifærið & verður útiteknari & útiteknari

vann mas á stuttermabol í 15 mín

nánar [9 apríl 2001]

að því er gefur að skilja á informanti siggamuss (díp þrót) virðist sem siggimus hafi óvart sótt um einkura ritstjórastöðu yfir einkurum áranum hjá einkuru vikulegu dagblaði sem heitir kapital í búlgaríu

enn fyrirspurt/svar svars [9 apríl 2001]

‘u, áðuren siggimus pakkar draslinu & kaupir flugmiða vill hann kannski vita kurjum áranum hann á að ritstýra í búlgaríunni, ha?’

svar við fyrirspurn [9 apríl 2001]

heyrðu! siggimus sótti barasta óvart um einkura ritstjórastöðu í yfir einkurum áranum í búlgaríu

‘kunar kemur siggamussins til búlgaríu, plís?’

skvík!

beibin fundin [8 apríl 2001]

beibin sem siggimus leitaði að 9. febrúar fundin!

hafa líkast til aldrei í breiðholtslaug komið, en þeim mun oftar í  árbæjarlaug þar sem þær glenna sína bossa & dilla sínum brjóstum á einkar lystaukandi máta

íslenski draumurinn [7 apríl 2001]

sá loksins íslenska drauminn

stóð undir væntingum & vel það. áfram íslenski draumurinn

fyrirspurt [4 apríl 2001]

sendir emil til að fyrirspyrja um djobb

vinna! [3 apríl 2001]

slóst í för með jónasi, gústa gamla & gumma í baráttunni við ljót hekk reykjavíkur

athyglisvert að sólbrenna í dag, en verða úti í kafaldsbyl daginn eftir (næstum)

ú á ljót hekk!

næstum í bíó [2 apríl 2001]

tilraun til að sjá lalla johns í bíó klikkaði eilítið þarsem stefanv meðreiðarsveinn var hálfsofandi þegar siggimus mætir til að týna hann upp

ekki síst stuð fyrir siggamus sem óð eld & brennistein stígvélslaus til að komast

fréttir af starfi [2 apríl 2001]

einkur í soffíu, búlgaríu að leita að siggamusi í vinnu. þarf að kunna ískensku & ensku


Posted

in

by

Comments

Leave a Reply