maí 2001

gott kaffi!! [26 maí 2001]

í tilefni heimsendis (sjá enskt alías dagbókar, siggamussins nennir hreint ómögulega að yfirsetja…) rauk siggimus til & fjárfesti í mokkakönnu mikilli

hver vill ilmandi nýtt siggamussins espressó?

er siggimus kannski annasigga? [25 maí 2001]

er siggamus var í hringt & önnusiggu umbeðið í triljónasta skipti, tók siggimus að spöklera hvort hann mögulega ætti til eitt alteregóið ellegar klofinn persónuleikann enn & aukreitis

‘jú, það er hún,’ svarar siggimus sigurviss

‘nei’

‘víst er þetta annasigga! þekkiru önnusiggu ekki?’

‘ne-ei, siggimus er ekkert annasigga,’ sagði hún, ekki alveg eins sikker & í fyrra skiptið

‘nei!’

‘akkuru eru þá allir að hringja í siggamus & kalla siggamus önnusiggu?’

frauka átti engin svör við stórum spurningum siggamuss

en sú stærsta hangir enn í loftinu & suðar eins& fiskifluga: sannar þetta eitthvað?

enn eykst hróður siggamuss [24 maí 2001]

siggamus hefir nálgast úkraínskur skáldsagnahöfundur & beiðst aðstoðar við verk sitt

siggimus mun ljá englum hans íslenskar raddir

pínu tjútt & fagn [23 maí 2001]

til að halda pínupons uppá daginn bauð siggimus nokkrum vel völdum drykkjusvolum í slotið & drakk með þeim øl

fjandakornið að andrea j eigi rassgat í ólapalla eða dodda litla!

samt lukkaðist nú siggamusi að sýna nokkra fornfræga takta á gólfinu dansins

meira [23 maí 2001]

ekki að það eigi að koma nokkurri lifandi sálu á óvart sem hefir á siggamus heyrt minnst, en siggamusi var boðin ný vinna

nú var siggimus alsæll í gömlu vinnunni, en þessi sona leitaði hann uppi & potaði í hann & kitlaði hann & sagði viltu vera memm með voða getnó röddu, svo siggamus brast þrek til að berjast í mót

siggimus í klípu & illt í efni: hvort skal velja djobb með vaðirí í leðju uppað eyrum & vöðvaglenningum & skóflusveiflingum ellegar puntudjobb sem þarf að vinna í jakkafötum eins& mörgæs?

siggimus fer í bað & mörgæsabúning í júlí

hallelúja! [20 maí 2001]

bjór er svo sannarlega mjöður ossra guðanna

þjóðhátíð í norge & siggimus eykur við frægð & frama í búlgaríu [17 maí 2001]

loksins & eftir langa mæðu heldur noregur upp á þjóðhátið & siggimus verður heimsfrægur um alla búlgaríu yfir nótt

það verður þó í allri sanngirni að takast fram að þetta hefir staðið til um skeið hjá norðmönnum & kemur því ekki öllum á óvart

siggimus hefir einnegin bakvið tjald plottað innrás í búlgaríu í samkrulli við hátt skrifaðan umba sinn þar (sem án tvímæla ber af öðrum austurevrópuagentum siggamuss)

nemahvað, hannibal hafði það af að komast á búlgarskt prent í þeirri mikilsvirtri & hátt skrifaðri púbblíkasjón sem starshel er, en því hefir einmitt hlotnast þessi mikilsvirtingur & háttskrifaðingur fyrir að birta í sí & æ hverja brakandi snillina á fætur annarri á sviði húmors & satíru í þau heilu 50 ár sem það hefur komið út (þrátt fyrir hingaðtil skammarlega lítið af siggamusi)

siggimus er stoltur af að hafa þarna slegið flugu í höggi: hópur nóbelsverðlaunahafa & annarra mikilsverðra manna slóst í þessu í för með siggamusi

til marks um óefanlega snilld siggamuss má þess til gamans geta að ritstjórinn rauk í ofboði í næsta síma við það að fá söguna í hönd & hringdi á flogakenndan hátt í siggamuss agent & beiddist þess auðmjúklega að siggimus tæki þátt í samkeppni (kompetisjón) þeirri frægri sem þeir aleko 2001 kjósa að nefna

fyrir listræna hönd siggamuss, þáði agent snimmendis. meira seinna

höfundarlaunin, heilar 250 spírur ganga til að fjármagna væntanlegt safn siggamuss, siggimus eum

langi yður að rifja upp etv ryðgaða búlgörsku með stækkunargleri, býður siggimus yður að finna jarteikn þar um. siggimus hefir fyrir yðar haganleiks merkt við þar sem stendur siggimus & ísland, & aftur þar sem stendur hannibal er rauð lína

allir vilja siggamus [14 maí 2001]

allir & frændi hans virðast nýverið hafa fundið hjá sér ódrepandi áhuga til að fá siggamus til að ritstýra einkurum skollanum fyrir sig

siggimus fór í vellukkað viðtal um að ritstýra dóti

meira innan skamms

lætur á kenningu reyna [12 maí 2001]

í tilraun til að láta á kenningu nýsmíðaða (‘nýja kenningin um bjórdrykkju’) reyna gerir siggimus heiðarlega & að sumu leyti lukkaða tilraun til að halda út að góna á þau ósköp sem eru júróvísjón með því að drekkja um leið sem flestum af skynfærum sínum í freyðandi øli

siggamussins uppáhaldsi gekk sem von er & vísa vel

mumiy troll lenti í flottu 12ta sæti með lag sem hljómar býsnin öll eins& megnið af þeirra mússík (utan engilsaxneskt ljóðið sem varð öðrum keppendum fótur um fjöt), en á einkurn vladivostoskan máta komast þeir kauðar upp með þetta eins& glæponar, ekki svo ýkja ólíkt prata vetra/brainstorm

víst var ingjaldur á rauðum skóm & smíðar kenningar um bjór [11 maí 2001]

siggimus slær stefanv & óskar í för með síns & heldur sem leið liggur að berja augum nýjasta hugverk hugleiksara, víst var ingjaldur á rauðum skóm. jóhanns rumpur mikla vekur lukku

heldur þvínæst beinustuleið að næsta bjór, á hverri beinustuleið iluks nokkur slæst í för

setið á rökstólum & kenningar um galdurinn sem liggur í síðustu 2-3 sopunum af bjór no. 2 fram settar; þetta er bjórinn sem gerir karlmann kenndan & lætur karlmann langa í meira ljúft øl & lauslátara kvenfólk & fleira ýmislegt ílanganlegt

komust kumpánar ískyggilega nálægt því að smíða haganlega gerða kenningu sem kemur til með að breyta hugsanagangi vísindasamfélagsins eins& þið þekkið það í umræðum um hvort frávik eins& að drekka tröllabjór (1l) eða kellingabjór (0,33l) fokki upp bjórkarmanu sem verður tvímælalaust að vera í fullu jafnvægi við umheim til að glaðar stundir geti ást & geti valdið katastrófum á borð við þá að bjórdrekkandi missi ráð & rænu á undan áætlun ellegar að hann upplifi þá verstu martröð bjórdrekkjanda: að finna aldregi á síns [hér sé hrollur]

ekki fara langt

siggimus & félagar í kenningasmíð hafa hafist handa við smíð þakkarræðna þeirra sem haldnar verða við móttöku nóbelsverðlauna

kaffi & krossgáta [6 maí 2001]

siggimus sýnir & sannar að hann hefir engu gleymt

svolgrar í sig pressukönnu af eðalkaffi & rumpaði af krossgátu á undir sex sigur rósar lögum af ágætis byrjun

fann mas villu í krossgátu!!

tsk! tsk! skammastín lesbók!

amæli & tinnitus [5 maí 2001]

dj óli palli virðist hafa smitað siggamus af tinnitus, sem er kannski mússíggurinnar virði? allt einkuddnveginn orðið nefmælt, meiraðsegja vatn að sjóða

1 árs amæli exóduss siggamuss frá landi elds&ísa fejrað með timburmönnum undir meðallagi & heimsókn í ikea. siggimus mælir svo um að aldrei skuli farið í ikea án timburmanna ellegar tinnituss meðferðis

einkurir annars ágætir vöðvar í siggamussins hálsi virðast hafa farið ílla útúr dansæfingu

barbíkjú [4 maí 2001]

jóhann býður til barbíkjús

siggimus 2001 hefir sína regnhlífina magnaða meðferðis til v&v

horfði illilega á kauða sem gerði sín stykki á mogwai eftir trúarlega upplifun þá sem voru tónleikar

siggimus þvínæst kíkir á 22 með stefanv í halarófu & dansar sem 3 óðir menn væri í 2 klst

siggimus segull? [3 maí 2001]

siggimus orðinn segull á fögur sænsk fljóð?

etv koma tvær til!!

siggimus á góðar stundir íhugandi sænska haremið siggamuss tilvonandi

sænsk frauka slæst í hóp með siggamusi! [2 maí 2001]

siggimus rétt búinn að taka upp 3 stöff þegar kemur bara sænskt fljóð & slæst í hóp!!

u, hvort ætli sé betra: að siggimus misþyrmi sænsku ellegar þegi ella?

sumsé, ekki vera hissa ef sænskt fljóð svarar í símanr siggamuss & alsekki örvænta

siggimus flytur [1 maí 2001]

loks flytur siggimus af stofugólfi í slott (altoflangtsíðansíðast!). pakkar saman sínu stöffi & flytur til reykjavíkur í amk 4 mánuði

á þíns ísskáp að gefa siggamusi? eða lítinn & lausan bakaraofn?

ný adresa:

siggimus
[defúnkt!]
101 reykjavík

siggimus býður nýja nágranna, olikr, korlyx, stefanv, iluks &fl, velkomna & lofar eðalkaffi fyrir kurja heimsókn

siggimus vill nota þetta tækifæri & vettvang & bjóða sitt gamla & heittelskaða símanr velkomið heim aftur eftir útlegð í höndum stefanv. allir saman nú: XXX XXXX velkomið heim aftur!!

siggimus syndir um af yndi í því litla mússíggi sem hann er með nú þegar & getur hlýtt á til friðs

…mmm, siggamussins mússígg…


Posted

in

by

Comments

Leave a Reply