febrúar 2001

múm & slowblow!! [27 febrúar 2001]

trallalla!! siggimus, skúli & stefanv herja á gauk & berja augum einkura þórunni sem hljómar pínu eins& jewel & so slowblow! & múm!

dúndur! mega! áfram slowblow & múm!!

leika við jóa & stebbaling [24 febrúar 2001]

fer & leikur við stebbaling & jóa kút á nelís & næstabar & 22. jóa gert tilboð á 22, einkur kall sem langaði ógeðsla mikið að dansa við’ann

valis gerir fönix [23 febrúar 2001]

siggimus leikur sér við valis, & fiktar ponsu þartil vindós týnir c: d: & e:

ekki gott. panikk!

losað um panikk með aðstoð ra, sem er náttúrla snilli
c: straujað & valis fær me

allt míklu betra en vantar smá pínupons ?
allur póstur frá 15. des til 15. feb týndur & trölli gefinn
ekki vera feimið við að senda sigga afrita af öllum flottu póstunum sem hann gerði þá, ha?

samt smá gott? valis er náttúrlega orðið monstur miðaðvið kuddnin það var

vonlaust kaffihús [20 febrúar 2001]

önnur tilraun til að nota bakaríið í mjódd eins & kaffihús, svo siggimus þurfi ekki að fara niðrí bæ. vita vonlaust. bakkelsið er sosum í lagi, en þetta var ekki espresso fyrir túkall. svo örlar ekki á stemmningu þarna… siggimus er dæmdur til að fara í bæinn til að skrifa

malkmus [16 febrúar 2001]

siggimus fór með stebbaling & sá malkmus, fyrrum pavement hetju á gaukástöng. ekki vondur kall, enda kall með mus í nafninu sínu

bak tú skúl [13 febrúar 2001]

bakk tú skúl, eða þannig. siggimus munstraður í bakskóla! lærir að vera með bak

hvar eru beibin? [9 febrúar 2001]

fór í sund. marineraði ponsu í potti. akkuru er siggimus sá aleini undir 60 í sundi á daginn? hvar eru beibin? siggimus vill sjá alvöru brjóst & rassa, ekki fyrrverandi brjóst & rassa

myndir tilbúnar! [8 febrúar 2001]

siggimus setti loksins stórkostlegar myndir úr ferðinni í albúm!! vinsamlegast hringið & pantið sýningu í síma

dagur í tvælæt sóni [6 febrúar 2001]

var búinn að steingleyma pin-númeri sökum lítils brúks. pantaði & fékk sent frá banka. geymdi á skrifborði yfir nótt. vaknaði morguninn eftir & hafði dreymt að ég opnaði bréfið! fann bréfið, opnaði & upplifði svaka dejà vu. siggamus dreymdi mas rétta númerið. nananana
þarf að prufa aftur með vísa

meðvitaði róninn [5 febrúar 2001]

siggimus í kjörbúð, í biðröð með brauð. kall fyrir framan snýr sér við, dæsir & segir “sona er að vera róni!” & indíkerar 8 flöskur af kardímommudropum í fangi sér. siggimus flissar & samsinnir. róni bætir við “& það er ekki eins & maður geti stolið þessum fjanda! þjófavörnin fer alltaf í gang…”
fór & hitti bjössa geðveika á kaffitári, kringlunni. fílaði skiljanlega söguna um rónann í tvö spöð

voff!! [3 febrúar 2001]

fór & hitti sigga f & egil ax hjá egils. drukku eins & 3 svín hver. svifu svo um næturlíf reykjavíkur reyrðir á bak óminnishegrans ógurlega. allar tillögur eða getgátur um möguleg ævintýr siggamuss umrædda nótt voða vel þegnar. siggimus veit núþegar: kolla, 22 & sirkús, takk æðislega


Posted

in

by

Comments

Leave a Reply