Albert: „Ég vildi að það væri 18. júlí“
Pabbi: „Ha, nú af hverju?“
A: „Af því að þá sofum við einu sinni og svo er Húgó eins árs!“
Sko 18. júlí. Daginn áður en hvolpurinn verður ársgamall. Ekki 7 dögum seinna, sem er daginn áður en Albert sjálfur verður fimm ára…