Þegar þú ert frestari dauðans og hefur >1x & >2x fengið sekt fyrir að þú koma ekki tímanlega með bílinn í skoðun, en tekst svo á einhvern óskiljanlegan hátt að mæta með bílinn daginn áður en þú færð sekt og finnst eins og þú hafir sigrað lífið …

nema gaurinn á skoðunarstöðinni verður kindarlegur þegar hann slær inn bílnúmerið og segir „Öööö — þessi gaur“ og bendir ásakandi á félaga sinn — „sko, þessi hérna gaur setti vitlausan miða á bílinn þinn í fyrra! Þú þarft ekki að koma fyrr en á næsta ári“

…og ég barasta get ekki ákveðið hvort þetta er gott eða slæmt fyrir frestarann í mér…


Posted

in

by