Þar sem ég var úti að hlaupa* og hlusta á nýju PJ Harvey plötuna fór ég að hugsa um Ivan Pavlov. Ef ég er bara búinn að hlusta á plötuna við þessar aðstæður, verður þá til sú skilyrðing að ég tengi þessi frábæru lög um alla framtíð við sársauka, pínu, svita, andnauð og almenna vanlíðan? Mun þetta eyðileggja fyrir mér tónleikana 6. nóvember?

(*Ef hlaup skyldi kalla. Trúi því ekki sjálfur, en ég var að klára viku 2 af C25K. Ég er búinn að „hlaupa“ meira á síðustu 2 vikum en á sl. 20 árum þar á undan. Vúpp vúpp!)


Posted

in

by

Comments

Leave a Reply