Tag: life

  • bjórsmakk / beer sampler

    smakk á örbrugghúsi í Kraków

    micro brewery beer sampler in Kraków

  • bað um pólska pylsu í Kraków

    Pólsk pylsa

    þeim fannst ég ekki mjög fyndinn

  • Leigubílstjóri í Kraków

    var latur og tók leigubíl upp á hótel. bílstjórinn sagði ekki mikið á leiðinni, nema kvartaði undan traffíkinni og svo: „einmitt! seinni partinn á föstudegi er tilvalið að fara í smá vegavinnu!“’”

    það er rétt sem þau segja hugsaði ég – Pólverjar eru síkvartandi!

    uppi á hótelherbergi tæmdi ég vasana og fattaði um leið að síminn varð eftir í leigubílnum

    pínulítið taugaáfall

    rótaði í hrúgunni úr vasanum. fann kvittunina frá leigubílnum. hljóp niður í afgreiðslu í ofboði til að sjá hvort hægt væri að reyna að ná í gaurinn

    það fyrsta sem ég sé þegar lyftudyrnar opnast er kaldhæðinn en elskulegur leigubílstjóri að afhenda símann minn í afgreiðslunni

    Jacek Szczepa?ski, ég gæti ekki sagt eftirnafnið þitt þó lífið lægi við, en ég elska þig!

    ég reyndi að knúsa hann, en hann vildi það ekki. klappaði honum vel á bakið og sagði „thank you“ og „dzi?kuj?“ átta milljón sinnum á meðan hann lagði á flótta frá atlotum mínum

  • Þegar þú ferð á bás á almenningssalerni til þess eins að skipta um föt og hreyfiskynjarinn sturtar fimm sinnum niður

  • einn bjór enn á Propaganda
    /one more beer at Propaganda

  • she’s had another baby!!

    If you compare this picture, taken yesterday to the one below, taken almost exactly 16 years ago, you can see she’s had another baby!


    here’s the other picture, taken almost exactly 16 years earlier

    Here’s more from almost exactly 16 years ago

  • Hljóð

    Sniðugt!

    Það kemur víst svona hljóð í vekjaranum þegar stundin rennur upp

  • 13

    Gert er ráð fyrir að hiti nái allt að 13 stigum syðst á landinu í dag.

    Vinsamlegast gerið viðeigandi ráðstafanir

  • Hugur minn er hjá gaurnum á Imprezunni með einkanúmerið BADDIP

    Þetta hlýtur að hafa verið ein slæm dýfa

  • Bilað

    Sjónvarpið mitt er bilað. það getur ekki verið að þetta innslag um kakó hafi átt að vera þarna, í beinni útsendingu í þokkabót