svona. líður mikið betur

Eftir að ég endurnýjaði tannburstann í gær áttaði ég mig smám saman á því að ég er búinn að nota barnatannbursta í 2 mánuði

uppfært:
Hvernig á maður að geta sofið rólegur í vinnunni vitandi af einhverjum síkópata sem stillir á 6?

Bruninn í Breiðholtinu var í íbúðinni við hliðina á afa. Það er allt í lagi með hann, þetta uppgötvaðist frekar fljótt, m.a. af því rafmagnið fór af.
Slökkviliðið var komið strax og það tók ekki langan tíma að slökkva eldinn. Ég heyrði í gamla og hann er bara hress. Afþakkaði áfallahjálpina pent ![]()
Fór í göngutúr í gærkvöldi og mætti stórum hóp af hælisleitendum.
En í staðinn fyrir að stela af mér vinnunni, kveikja í mér og nauðga sögðu þeir bara kumpánlega “Hello!”
þegar dætur þínar eru búnar að hirða öll flottu sólgleraugun
when the girls have taken all the cool sunglasses…

Ég byrjaði að vinna hér í febrúar 2009. Ég man mjög vel að fyrsta eða annan miðvikudaginn sem ég vann var ofboðslega kalt – snjór og hálka. Ég man líka mjög vel að þegar ég kom hikandi og feiminn inn í matsal í hádeginu voru mjög margir í flís- og lopapeysum, og sumir þeirra börðu sér til hita. En það sem ég man best er að það voru líka nokkrir sem sátu þar á stuttermabolum og það stóð upp af þeim gufan – bókstaflega. Þau voru víst að koma úr sjósundi
Í dag, rétt tæpum 7 árum síðar, var ég á stuttermabol í hádeginu