Þegar þetta dugði ekki til að vinna jólapeysukeppnina í vinnunni fyrir fjórum árum hætti ég að taka þátt

Dómaraskandall
Þegar þetta dugði ekki til að vinna jólapeysukeppnina í vinnunni fyrir fjórum árum hætti ég að taka þátt

Dómaraskandall
Eftir að hafa unnið hjá hugbúnaðarfyrirtæki í 10 var ég að taka þátt í mínu fyrsta hakkaþoni. Ég hafði smá áhyggjur af því að ég hefði kannski ekki mikið fram að færa, verandi aumur tæknihöfundur.
En ég var settur í að vinna í kynningunni! Ú já, hugsaði ég stoltur og belgdi út kassann — ef það er eitthvað sem ég kann og get, þá er það að skrifa!
Ég skrifaði eins og vindurinn, nema ég skildi eftir nokkur smáatriði hér og þar, sem ég ætlaði að bera undir verkefnastjórann í hópnum.
Ég: Best að fara og fá verkefnastjórann til að hjálpa mér að loka þessu
Tölva: *ping! You have mail!* „Tillaga að kynningu“
Verkefnastjórinn var semsagt búinn að gera kynningu sem var átján skrilljón sinnum betri en það sem ég var ekki einu sinni hálfnaður með.
Ég lúslas kynninguna í leit að einhverju til að setja út á, bæta eða breyta… Nema hvað, áhyggjur mínar af því að hafa ekkert fram að færa voru óþarfar. Ég lagði til mjög mikilvægt vaff sem vantaði í nafnið hans Tryggva á fremstu glærunni
Fátt verra en þegar lítil börn byrja að gubba einmitt þegar maður er að bursta tennurnar. Svo liggur maður hálfsofandi alla nóttina með annað augað opið og 170 í púls og hrekkur upp með andfælum á sjö mínútna fresti ef einhver hóstar í 200 metra radíus
Uppfært, 18. nóvember:
…og nú taka við nokkrir sólarhringar á milli vonar og ótta um hvort þessi fjandi sé í alvörunni frá eða andstæðingurinn eigi enn tromp upp í erminni, bansettur
Uppfært, 19. nóvember:
Gubbupest 2: the reckoning
0.30 Telma: ![]()
0.35 Mamma: ![]()
2.30 Sandra: ![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
4.30 Albert: „Hvað gerðist?“
4.31 Pabbi: ![]()
Bangsi lúrir ![]()
![]()
4.52 A: „Endalaust kósí!“
4.53 P: ![]()
Bangsi lúrir ![]()
![]()
8.10 P: ![]()
(Albert er þriggja ára)
Fátt verra en þegar lítil börn byrja að gubba einmitt þegar maður er að bursta tennurnar.
— siggi mús (@siggimus) November 17, 2019
Svo liggur maður hálfsofandi alla nóttina með annað augað opið og 170 í púls og hrekkur upp með andfælum á sjö mínútna fresti ef einhver hóstar í 200 metra radíus#pabbatwitter
Við: Hvernig væri að prófa að gera eins og eðlilega fólkið og fara eitthvað í vetrarfríinu?
Líka við: Frábær hugmynd. Kannski fengum við hana soldið seint, en jú, frábær hugmynd!
Þannig atvikaðist það að við ókum á Egilsstaði í vetrarveðri og appelsínugulri viðvörun í lok október



