Öööööö, af hverju heldur Instagram að ég sé api?

Öööööö, af hverju heldur Instagram að ég sé api?
Eins og glöggir lesendur sjá er heilsuvika í vinnunni hjá minns
Verður stundum hugsað til smávöxnu nágrannakonunnar sem á bæði schäfer og st bernharðs og þarf að fara út að ganga með þá hvorn í sínu lagi
Var smá stressaður svo ég ákvað að standa upp, og hækkaði skrifborðið í fyrsta skipti í marga mánuði. Borðið var enn að lyftast þegar ég opnaði munninn til að segja eitthvað voða merkilegt. Skyndilega slökknaði á netinu, skjánum, heyrnartólunum. Skrifborðið hætti að lyftast.
Skreið í ofboði undir borð til að setja fjöltengið aftur í samband. Stóð upp og fiktaði örvæntingarfullur í öllu í heila eilífð – AF HVERJU VIRKAR FOKKINGS MÚSIN EKKI ENNÞÁ?
Andaði léttar þegar ég heyrði loksins raddir hinna á fundinum, þó það væri úr hátölurum fartölvunnar en ekki heyrnartólunum. Ýtti á unmute, dró djúpt andann og reyndi að muna hvern fjandann ég ætlaði aftur að segja…
Allir: „Bless og takk!!“
Þegar þú vaknar og það er ekkert rafmagn á húsinu og þú fiktar þig áfram í rafmagnstöflunni þar til bara tvö öryggi eru úti og ísskápurinn og frystiskápurinn og hinn frystiskápurinn úti og reynir í ofboði að finna rafvirkja á laugardagsmorgni og ert kominn með kvíðahnút af því að kannski er lekaliðinn farinn og þú ferð á hausinn við að láta laga það og ísinn bráðnar á meðan og þú stendur úti og hefur áhyggjur og hitar vatn á pínulitlum prímus til að fá amk kaffi en svo eftir nokkra klukkutíma kemur indæll sjötugur karl sem dundar heillengi og talar um tíðnisvið og reddar á endanum öllu með því að aftengja útiljósin á pallinum sem þú ert bara dauðfeginn að losna við því þau fóru kossumer í pirrurnar á þér og slógu reglulega út og rukkar bara smáaura fyrir og þú færð spennufall og ferð næstum að skæla
S/O á svartklædda manninn í duftkirkjugarðinum sem veifaði svartri uppspenntri regnhlíf ógnandi upp í loftið.
Ég skildi ekkert …fyrr en ég sá grágæsirnar tvær sem hann miðaði regnhlífinni á og stýrði fimlega um himininn
Löngu eftir að ég gleymi nafninu mínu mun ég muldra lactobacillus acidophilus, bifidobacterium bifidum
Albert í morgun: „Pabbi, er tólfti í dag?“
Pabbi: „Ööö, é veitiggi…“ *athugar* „Já það er tólfti! Hvernig vissirðu?“
A, ekki orðinn fimm ára: „Það var ellefti í gær!“
Hef átt erfitt með að koma hugsunum mínum í orð, svo ég geri orð Starra á FB að mínum