Ég trúi ekki að ég þurfi að spyrja að þessu, en hvernig er best að losna við mús sem er komin inn (í leyfisleysi)?
Tag: life
-
Afsakið, en ég þarf aðeins að deyja (úr elli)
Please excuse me, I have to go around the back and die from old age

— a tiny manatee (@asmolmanatee) August 14, 2021
-
Einmitt það sem vantaði kl 3.39 að nóttu til

Rafhlaða, reykskynjari
PS: Komst að því fyrir nokkrum vikum að það á sér eðlilega skýringu að reykskynjarar pípi frekar á nóttunni þegar rafhlaðan er að gefa sig!
Hitastig! Rafhlöður gefa frá sér minni orku með lækkandi hita, og það er yfirleitt kaldara að nóttu til.
-
Hætta að hoppa
Albert: Hoppar í sófanum. Dettur niður á gólf. Grætur ógurlega
Pabbi: „Við erum alltaf að segja þér að hætta að hoppa í sófanum. Hvenær ætlarðu eiginlega að hætta?“
A:
„Ég skal segja ykkur, ég ætla að hætta eftir einn janúar!“Uppfært 4. janúar:
Hann hætti ekki


