Telma: „Grillar mamma jólasveinana?“
Pabbi: „Haaa? Meinarðu til að borða þá?“
T: „Grýla er mamma jólasveinanna!“
„Jájá, þessi bók er ágæt, en það er samt svona sem á að nota skó sko!“


Hvernig veit ég nákvæmlega hversu desperat fólkið var sem hringdi áðan og bað mig að leika jólasvein?
Nei, það var ekki Albert sem gerði þetta piparkökuhús fyrir jólaföndrið í skólanum.
Það voru vissulega efasemdir um hvort við ættum að setja húsið í keppnina, en Ance og stelpurnar ákváðu að slá til og fengu svo verðlaun fyrir athyglisverðasta húsið ![]()

No, Albert wasn´t even near when Ance & girls made this gingerbread masterpiece for school´s event. ![]()
There was a moment of doubt right before delivering it, but the will to participate took over and after all we got some award for the most adventurous piece of art. No regrets. ![]()
Þá er 2017 gengið í garð og hér í sveitinni byrjar það með látum!
Albert útskrifaðist í gær úr stífum æfingabúðum þar sem farið var yfir grunnatriði þess að velta sér á kviðinn. Á ögurstundu, eftir að faðir hans hafði pískað hann áfram eins og pínulítinn kínverja í fimleikabúðum tókst honum loks að velta sér yfir á bumbuna. Svo skemmtilega vildi til að þetta var sirkabát 20 sekúndum eftir að faðir hans lagði frá sér (kvik)myndavélina þegar minniskortið fylltist.
Stelpurnar standa einnig í stórræðum, en þær fluttu búferlum. Nú býr Telma í efri koju en Sandra er flutt í þá neðri. Sandra vaknaði tvisvar í nótt og bar við erfiðleikum að aðlagast lífinu á nýja staðnum.