Kem að Albert hálfum inni í ísskáp að þamba ávaxtasafa beint úr fernunni.
Albert: „Ég er rúsínudrengur. Nei, bíddu, hvernig segir maður aþtur?“ ![]()
Pabbi: „Ööööö, meinarðu rúsínurass?“
A: „Já! Ég er rúsínurass og djúsínurass!“
Kem að Albert hálfum inni í ísskáp að þamba ávaxtasafa beint úr fernunni.
Albert: „Ég er rúsínudrengur. Nei, bíddu, hvernig segir maður aþtur?“ ![]()
Pabbi: „Ööööö, meinarðu rúsínurass?“
A: „Já! Ég er rúsínurass og djúsínurass!“
Pabbi: „Ég ætla út með Húgó. Er allt í lagi að þú sért einn niðri? Ef þú þarft hjálp við eitthvað geturðu bara náð í mömmu uppi“
Albert, fjögurra ára: „Ég geri bara sjálfur“
Ég man nú ekki eftir að hafa skrifað þetta, en fyrst það er komið á listann verður ekki aftur snúið ![]()


Krakkarnir leika með krossorðaspilið
Albert: *rótar í stöfunum* „Hvar er þoddn?“
Pabbi: „Þorn? Hvað ætlarðu að skrifa?“
A: „Aftur“
P: ![]()
A:

Eftir að suða heilmikið í og takast loksins að sannfæra pabba um að koma út að leika tekur Albert sér 20 mínútur í að klæða sig til að fara út með pabba.
Pabbi: „Jæja, ertu tilbúinn?“
Albert: „Ég þarf að pissa. Uppi“
… 5 mínútur…
P, niðri: „Hvernig gengur að pissa?“
A: „Illa. Ég ætla fyrst að leika mér í Barbí og síðan að pissa“
P:
A: „Ertu að hlæja?“
Albert: „Pabbi má ég skrifa staf?“
Pabbi: „Jájá!“
P: *kveikir á tölvunni*
A: „Pabbi má ég prenta staf?“
P: „Jájá!“
P: *fær sér kaffi*
…
P:
„hmmm, er prentarinn enn að prenta..?“



Eftir 216 auðar síður kemur svo pönsið:

Pabbi: „Hvaða lönd þekkirðu í Afríku?“
Sandra: „Afríku?! Ég þekki ekkert!“
P: „Við skulum prófa að ég byrja að segja landið, og þú klárar. T.d. Egy…“
S: „Egyptaland!“
P: „Frábært! Og Ken…“
S: „Kennitala!!“