Tag: Best of

  • Listi

    Veit einhver um búð þar sem gæti verið hægt að fá allt á þessum lista? Því annars fækkar á heimilinu um einn fimm ára Í umræðunni kom m.a. fram: Þetta eru víst kvattúordesilljón peningar – í óskilgreindum gjaldmiðli – eða silljón killjón filljón peningar – (fer eftir því hvern þú spyrð). Skv. gúggli frænda er…

  • Garg

    Búið að lesa og slökkva ljósin fyrir háttinn Albert: „Fólkið sem á heima í hausnum á mér er að garga! Ég er ekkert sybbinn!“ Sem betur fer var dimmt svo hann sá ekki á mér svipinn A: „Í hausnum á mér er ennþá dagur! Ég get ekki sofnað!“

  • N

    Albert, 5 ára: „Pabbi, ég kann ekki að segja enn!“ Pabbi: „Ha? Jú, þú varst að segja enn!“ A: „Nei! ég kann ekki að segja enn! Eins og í siggi nús!“ Í 2 klst hefur hann ekki sagt eitt einasta m, þrátt fyrir gildrurnar sem við höfum lagt fyrir hann: nanna, nargrét, annæli, narnelaði, njólk,…

  • Albert: “Pabbi, átt þú smjattsmapp?“

  • Mótorhjól

    Í bíl með Albert Pabbi: *bendir* „Mótorhjól!“ Albert: „Þú þarft ekki að segja það! Það sést alveg! Það heyrist alveg!“ P: „Ööööö“ A: „Ég er með augu og eyru!! Sérðu að ég er með augu og eyru!?“

  • Lagið mitt

    Albert: „Mig langar að setja lagið mitt á TikkTokk“ Pabbi: „Já? Hvaða lag?“ A: „…pabbi, það er fokk í laginu…“ A: *raular* „Ég var með fokk…“ P: hmmm? A: „Það er rosa mikið fokk í laginu. Það er 190 fokk. Ég má ekki syngja það. Ef ég syng það kemur löggan“

  • Tilfinningar

    Albert: Öskurgrenjar yfir grimmilegum örlögum lítils flamingóunga í sjónvarpinu. Líka Albert: Blikkar ekki meðan hann hleypur um allt í Among Us og afhausar þrjá í beit. Líka líka Albert: Getur ekki sofnað yfir áhyggjum af vesalings Bertu sem þarf að eyða nóttinni alein á neðri hæðinni

  • Draugasögur

    Allir segja draugasögur Albert: „Einu sinni var draugur!“ *athugar hvort einhver er orðinn hræddur* A: „Og draugurinn fór inn í hús! …og draugurinn fann fót!“ Pabbi: „Fót?!!?“ A: „…pabbi ég vil ekki segja sögu. Núna þú segja sögu…“

  • Horfa á hita!

    Pjakkur: „Pabbi, mig langar að fara á krakkarúv og horfa á hita!“ Tók smástund að fatta að hann vildi horfa á veðurfréttir. Hér er hann að horfa á veðrið síðan í gær í þriðja sinn Btw, hann verður ógurlega leiður þegar hann sér að það er bara þrír hjá okkur, en fagnar voðalega þegar farið…

  • Í stríði við Karíus og Baktus

    Burstum tennur fyrir háttinn Albert: „Pabbi á ég að segja þér eitt?“ Pabbi: „Já, segðu mér!“ A: „Æ, hvað heitiridda aþtur?“ P: ??? A: „Æ, þarna sem er í stríði við Karíus og Baktus?“ P: „Hérna, me-meinarðu … hvítu blóðkornin?“ A: „Já! Einmitt!“ *bendir á Spiderman plásturinn þar sem hann var bólusettur* „Hvítu blómkornin eru…

  • Fjögurra ára skoðun

    Albert, fjögurra og hálfs árs í fjögurra ára skoðun: Hjúkrunarfræðingur: „Sýndu á spjaldinu hvaða stafur er alveg eins og stafurinn sem ég bendi á!“ A: „O! Tje! Há! Vaff!“ Hjfr: „Þekkirðu alla stafina?!?“ Hjfr: „Kanntu að telja upp í tíu?“ A: *telur upp í tíu* Hjfr: *byrjar að skrifa* A: „…Ellefu! Tólf! Þrettán! Fjórtán! Fimmtán!…

  • Rúsínurass

    Kem að Albert hálfum inni í ísskáp að þamba ávaxtasafa beint úr fernunni. Albert: „Ég er rúsínudrengur. Nei, bíddu, hvernig segir maður aþtur?“ Pabbi: „Ööööö, meinarðu rúsínurass?“ A: „Já! Ég er rúsínurass og djúsínurass!“