Það besta við daginn eftir að þú kemur heim úr sumarfríi er auðvitað að börnin eru enn á öðru tímabelti og vakna kl. 5 en ekki 8
Tag: Albert
-
Allir geispa
Albert biður mig gjarnan um að lesa þessa bók fyrir háttinn

Allir geispa Svo horfir hann næstum ekkert á bókina, starir bara á mig og bíður eftir að ég fari að geispa óstjórnlega, sem ég geri sirkabát á bls. 6

Allir geispa – kisi litli 
Allir geispa – litla barn 
Allir geispa – litla barnið geispar -
Albert á Twitter
Þegar tveggja ára sonur þinn laumast í símann til að rabba við Berg Ebba og Bubba
Hæ i
— siggi mús (@siggimus) May 18, 2018

Bergur Ebbi, Bubbi og Albert spjalla -
Grimmd heimsins
Ungur maður uppgötvar að grimmd heimsins á sér engin takmörk.
Öskurgrátandi því enginn vill fara með honum út að hjóla kl. 7.38 á laugardagsmorgni.

-
Koja
Það fylgir því mjög sérstök blanda af stolti, örvæntingu og uppgjöf að komast að því að 21 mánaða barn þitt er orðið nokkuð lunkið að klifra upp í efri kojuna
-
Stubbur
Að fylgjast með barni, tæpra tveggja vetra, reyna að fiska upp lítinn stubb af spaghettíi með bústnum fingrum er góð skemmtun

Spaghettí, stubbur -
Tannbursti
Gleymdi símanum þegar ég fór á prívatið fyrir háttinn, svo ég þurfti að hugsa meðan ég burstaði tennurnar. Bíddu, hvað var það aftur sem Ance sagði áður en hún fór að sofa? Eitthvað um tannbursta?
Já, nú man ég! *spýta!* Albert var að leika sér með tannbursta! Leika sér með tannbursta, minn bursta … í klósettinu …



