Í þrettán daga þurfti að benda Albert (2ja og hálfs) á að kíkja í skóinn sinn á hverjum morgni
Að morgni jóladags er það fyrsta sem hann segir „Kíkja skó“
Tag: Albert
-
Piparkökuhús og jólaföndur

Sandra og Albert rúlla deigið 
Albert aðstoðar eftir fremsta megni 
Telma sker út piparkökur 
Það þurfa líka að vera stjörnur 
Albert og Telma skreyta þakið 
Sandra skreytir, Albert leiðbeinir 
Hvar er piparkökukallinn?!?! 
Telma og Sandra skreyta 
Telma býr til krans á föndurkvöldi í Klébergsskóla 
Sandra og Telma á föndurkvöldi í Klébergsskóla 
Piparkökuhúsið tilbúið 
Jólakransinn tilbúinn 
-
Í hartnær tvo mánuði tókst mér ekki að fá gólfhitann til að flytja neinn hita í svefnherbergin tvö á efri hæðinni. Það varð oft soldið kalt, en slapp samt til, og verandi frestari par exelans hummaði ég það fram af mér — þangað til Albert varð veikur í kuldakastinu um daginn — þá réðist ég með blóti og formælingum á „flækjuna“ og djöflaðist í henni þangað til loksins eitthvað gerðist
Nema hvað, Albert batnaði og kuldakastið breyttist í hlýindakast
Í gærkvöldi sat ég á stuttermabol við opinn gluggann, las fyrir Albert fyrir svefninn og það bogaði af mér svitinn
-
Esjan með börnunum
Við misstum af því að fara með Ferðafélagi barnanna á Esjuna, svo við fórum bara seinna sjálf
Börnin stóðu sig eins og hetjur

Telma og pabbi í stuði í upphafi ferðar 
Stígur og ský 
Albert hvílir lúin bein 
Nestispása og hópselfí!! 
Pabbi og Albert 
Horft til baka 
Strá 
Allir á Esjuna 
Allir komust upp að Steini!!


