Albert: „Pabbi, viltu verða ríkur?“



Albert: „Pabbi, viltu verða ríkur?“
Les í bók um Haaland, fletti upp hvað búa margir í Kína (mjög margir!), fletti upp hvort hafi orðið meiri kuldi í Rússlandi eða Kanada (Rússlandi). Segi góða nótt við Albert, sest undir rúmið
Níu mínútur af rólegum andardrætti og byltum…
Albert: „Hvernig segir maður aftur ég er strákur?“
Pabbi: „Öööö, hvað meinarðu?“
A: „Á frönsku! Manstu?“
Semsagt, þegar ég kom niður í morgun sat hann aleinn í stofunni og lærði frönsku á Duolingo í spjaldtölvunni: „Je suis un chat!”
Ég reyndi að hjálpa honum með „Je suis un garçon“ en hann skammaði mig fyrir að nota ekki skrýtna c-ið
Pabbi: „Æ, eruði að troða í ykkur mat rétt fyrir kvöldmat? Ætlar einhver að borða kvöldmatinn?“
Albert: „Hvað er í matinn?“
P: „Baunasalat“
A: „Jú, ég ætla að borða mjög mikið! Þá get ég farið í Guess my fart í skólanum á morgun!“
í snjónum
Settist niður með Albert til að lesa eftir matinn
Dyrabjallan hringir. Sonur nágrannans spyr hvort Albert vilji koma út að leika með sleða
Pabbi: „Farðu út, við lesum bara á eftir. Ég vaska upp á meðan“
2 mínútur
Albert: „Pabbi hans spyr hvort þú vilt líka koma út að leika?“
Albert gerir mistök og er leiður
Pabbi ræðir við hann um sín eigin mistök: „Veistu, það er enginn sem hefur aldrei gert mistök“
Albert: „Jú, nýfætt barn!“
„Ég þoli ekki þegar fólk segir lífið er stutt. *dæs* Ég er búinn að lifa í SEX ár! …nei SJÖ ár! Veistu hvað það er ógeðslega langt sko??!“
-öldungurinn Albert
Við fórum í útilegu í Selsskóg við Skorradalsvatn.
Notuðum frítímann í að keyra um Borgarfjörð og leituðum að geocache
Albert, sjö ára, í baði: „Mamma, hvað er sugar daddy?“
(Mamma, sem er búin að vera heimavinnandi í svolítinn tíma vandaði sig mikið við að orða þetta ekki svo að drengurinn myndi segja – ahh, eins og pabbi!!)
Kvöld. Háttatími
Albert bað mig sitja undir rúminu meðan hann reyndi að sofna: „Þú mátt standa upp og athuga hvort ég sé sofnaður og segja *hvíslar* „banani banani“ … ef ég er vakandi segi ég „Niður“.“