Sandra: „Má ég baka?“
Pabbi: „Jájá“
Albert: „Má ég hjálpa baka?!?“
S: „Æi nei, síðast borðaðirðu hveiti!“
Sandra: „Má ég baka?“
Pabbi: „Jájá“
Albert: „Má ég hjálpa baka?!?“
S: „Æi nei, síðast borðaðirðu hveiti!“
Pjakkur safnar saman öllum stólum í húsinu.
Pabbi: *sitjandi á gólfinu við tölvuna* „Æ!“
Pj: „Það er að koma æfing!“ (sýning)
Pa:
Pj: „Stundum viljið þið horfa, og stundum viljið þið ekki horfa“
Pa: „Já“
Pj: „Er núna stundum?“
Fimm mínútum síðar er „æfingin“ hafin, og pjakkurinn syngur frumsamið lag á einhverju sem gæti næstum verið enska.
Endar á að öskursyngja: „Momí, æ nítúpíííííííí!!“
Pjakkur leikur sér
Pj1: „Ó nei! Það brotnaðist“
Pj2: „Hvað brotnaðist?
Pj1: „Brúin!“
Pj2: „Ó nei!“
Pabbi: *fliss*
Pj: *reiður* „Sérðu þetta?“ *bendir á bók sem liggur á gólfi á milli hillu og sjónvarpsskáps* „Brúin brotnaðist og datt í sjóinn! Þetta er ekki fyndið!“
Pabbi: „Við ætlum að fara í bíltúr!“
Albert: „Vei!! Hvert?“
P: „Heimsækja leiðið hennar ömmu. Amma þín er dáin og hún er ofan í jörðinni“
A: „Á að setja dáið fólk oní holu?!?“
P: „Ööö, já, hvar á annars að setja þau?“
A: „…í ruslið?“
Albert: *vill ganga frá innkaupum í ísskápinn*
Pabbi: *bendir á litlu tveggja þrepa tröppuna sem Albert notar sem stól* „Á ég að rétta þér tröppuna?“
A: *hleypur að stiganum sem liggur upp á efri hæð* „Tröppu? Þessa tröppu? Ætlarðu að rétta mér alla þessa tröppu?“
„Pabbi! Þú mátt ekki sjá mig þegar ég er að stelast!“
Ég bauð honum að láta mig vita þegar ætlar að stelast
Hann hugsaði málið í smástund og kinkaði svo kolli
Pirraður Albert kvartar yfir öllu í morgunsárið, en róast á endanum, eftir 2x brauð með sultu og tvo þætti af Hæ Sámi.
Hann skilur samt ekki alveg, því venjulega er ekkert sjónvarp á morgnana og bara hafragrautur á boðstólum: „Pabbi, af hverju leyfirðu mér allt?“
Kvöldmatur
Albert klárar af diskinum
Pabbi: „Viltu meira?“
A: *Hristir höfuðið ákveðinn. Bendir hneykslaður á mylsnu á diskinum* „Ég er ekki búinn!“
Albert: *fer inn í geymslu* „Pabbi, hvar er litli hamar?“
Pabbi: „Ööööö af hverju vantar þig hamar?“
A: „Til að hama dekkið á ruslabílinn!“
Eftir að suða heilmikið í og takast loksins að sannfæra pabba um að koma út að leika tekur Albert sér 20 mínútur í að klæða sig til að fara út með pabba.
Pabbi: „Jæja, ertu tilbúinn?“
Albert: „Ég þarf að pissa. Uppi“
… 5 mínútur…
P, niðri: „Hvernig gengur að pissa?“
A: „Illa. Ég ætla fyrst að leika mér í Barbí og síðan að pissa“
P:
A: „Ertu að hlæja?“
Albert leikur sér með bíla
Pabbi: *tekur bíl og byrjar að keyra* „brummmm“
Albert: „Þú kannt ekki að keyra bíl. Ég á að leika með alla bílana“
P: „Ó! En hvað á ég þá að gera?“
A: „Æ, farðu bara í símann!“