Gaman að sjá hvað börnin voru fljót að læra á Netflix.
Ekki að ég sé neinn sérfræðingur, en mér skilst að það eigi að leita að einhverju í klukkutíma og horfa svo á Mamma Mia í tólfta skipti
stuff that’s rehashed from social media
Gaman að sjá hvað börnin voru fljót að læra á Netflix.
Ekki að ég sé neinn sérfræðingur, en mér skilst að það eigi að leita að einhverju í klukkutíma og horfa svo á Mamma Mia í tólfta skipti
5 störf sem ég hef unnið við
1. Kúreki í Ísafjarðardjúpi
— siggi mús (@siggimus) March 28, 2020
2. Átöppun hjá ÁTVR
3. Textun barnaefnis fyrir Stöð 2
4. Prófarkalestur á vikublaðinu The Baltic Times
5. Tók myndir af apótekum í R?ga https://t.co/p1no4rHyk7
Á skjánum birtist snyrtilega klæddur maður: „Gott kvöld, nú verður sögð íþróttafrétt“
Pabbi: *kemur „heim“ úr vinnunni×*
Peppa pig: *er í sjónvarpinu*
Mamma: „What happened to George?“
Pjakkur (EKKI ORÐINN EFFING FJÖGURRA ÁRA!!): „Hí iss sikk“
P:
×niður tröppurnar
Pjakkur: „Helló momí!“
Mamma: „Hello daddy!“
Pj (EKKI ORÐINN EFFING FJÖGURRA ÁRA!!): „Nóóó! Æm nott dedí! Æm beibí!“
Pjakkur: „Pabbi hvað þýðir bödí?“
Pabbi: „Böddí?“
Pj: „Nei, bö-dei“
P: „Ahhhh, börþdei! Það þýðir afmæli“
Pj: „Kinkar kolli. Hún sagði líka jú tú!“
Pabbi: „Are you dog?“
Pjakkur: „Nó!“
Pa: „Are you pig?“
Pj: „Nó!“
Pa: „Are you car?“
Pj: „Nó!“
Pa: „Are you baby?“
Pj: „Nó!!! Ég er Albert!! Ég er hættur þessum leik!“
Þið, kjánar: Búin að vera með Netflix í 100 ár og búin að horfa á allt þegar þið þurfið að loka ykkur inni í mánuð
Ég, snillingur: Fæ mér Netflix viku eftir að við erum lokuð inni
Hmmm… Mér finnst eins og eitthvað vanti
Pabbi: *heyrir háværa tónlist niðri*
P: *kíkir niður*
Albert: *bendir á sjónvarpið* „Pabbi þetta er spottafæ“
Ég veit ekki hvernig, en drengnum (ekki orðinn fjögurra ára) tókst að finna Spotify appið í sjónvarpinu og er byrjaður að hlusta á uppáhalds lögin sín
Albert er núna með böggum hildar (les: öskurgrenjar) af því að derhúfa (sem hann sá í fyrsta sinn á ævinni á leiðinni út um dyrnar í morgun) varð eftir í leikskólanum
Albert hefur uppgötvað rím og orðagrín – rímorðagrín eða grínorðarím:
Pabbi: *fiktar í fjarstýringu fyrir sjónvarp* „Sjáðu, nú er líka hægt að horfa á þetta. Viltu horfa á Strumpa?“
Albert: „Hahaha! Strumpa – prumpa!!“ *deyr úr hlátri*
Pabbi: *strögglar við að koma syninum í sokka* „Sjáðu! Það eru hauskúpur á sokkunum!“
Albert: *skoðar* „Hauskúpur — hauskúkur!“
Ef eitthvað er að marka hvað Albert tekur þjálfun vel eftir að hann breyttist skyndilega og óvænt í hund eru systur hans sannkallaðir hundahvíslarar
Mamma: *kemur heim*
Pabbi: „Öööööööööö, ég er með góðar fréttir og slæmar fréttir…“
M: „?“
P: „Góðu fréttirnar eru að leikskólinn verður ekki lengur vandamál… slæmu fréttirnar eru að nú eigum við tvær dætur og… mjög vel upp alinn hund“