


stuff that’s rehashed from social media
Tíðindi af vesturvígstöðvunum: Dagur 297.214 í verkfalli.
Hér að neðan má finna kannski 17% af því sem við ungi maðurinn höfum rætt í dag:
Pabbi: *vinnur heima*
Albert: „Pabbi, það er enginn að horfa á Hvolpasveit“
P:
„Hmm??!“
P: *fattar að drengurinn er búinn að vera að leika sér með bíla í 20 mínútur*
P: „Ó! Má slökkva á Hvolpasveit?“
A: „Já!“
Albert: „Pabbi, ég hata eld!“
Pabbi: „Já, er það?“
A: „Pabbi, hatar þú líka eld?“
P: „Já“
Albert: „Pabbi, kvarta gera?!“
Pabbi: „Vinna“
A: „Pabbi, af hverju ert þú að skrifa a?“
P: „Mér finnst rosa gaman að skrifa a“
A: „Pabbi, mig langar líka að skrifa a!“

Albert: „Pabbi, mig langar að ég fara út og þú fara líka út“
Pabbi: „Og hvert ætlum við að fara?“
A: „Við ætlum fara bílinn. Og við ætlum að fara í búðina“
P: „Já? Og hvað ætlum við að kaupa?“
A: „Við ætlum kaupa epladjús. Og ekkert meira“
Albert: „Pabbi, af hverju finnst þér hárið gott?“
Pabbi: „Hárið?“
A: *bendir*

Í bíl:
Albert: „Pabbi! Kerrtu hratt!!“
A:
„PABBI!!! EKKI KEYRA Á BÍLINN!!“ ![]()
Pabbi: *heldur áfram að keyra á sama hraða allan tímann*
Á bílastæði.
Pabbi: *bakkar út úr stæði*
Albert: *bendir á bílana beggja vegna við okkur* „Af hverju eru þessir tveir bíll ekki fara?“
Pabbi: „Sérðu hvað pabbi er duglegur? Viltu líka vera duglegur?“
Albert: „Já!“
P: „Frábært, viltu hjálpa pabba að taka til og ganga frá lestinni?“
A: „Pabbi, ég nenni ekki að granga frá lestin því … því ég *dæs* er svo upptekinn!“
Albert: „Pabbi, þegar ég er búinn æpadd, ætla ég að skoða klukkan þína, hvort er tuttugu mínútur sex!“
Á leiðinni í háttinn:
Albert: „Pabbi, elskar þú Hvolpasveit?“
Pabbi: ![]()
![]()
„Öööööööööö… *svitnar* …hérna… ekki eins mikið og þú!“
team „fráhverfar tvíklær misstæðar“

Fróðleikur um gæsalappir:https://t.co/5N5ZRxIE0D
— Íslensk málnefnd (@malnefnd) March 5, 2020
Á fb: „”C” orðið er erfitt pilla að kyngja!!“
Svo kemur laaaaangur, illa þýddur pistill, sem inniheldur:
Samviskuspurning til foreldra með leikskólabörn heima vegna verkfalls: Elskarðu börnin jafn mikið nú og þegar verkfallið byrjaði?
Samviskuspurning til foreldra með leikskólabörn heima vegna verkfalls:
— siggi mús (@siggimus) March 2, 2020
Elskarðu börnin jafn mikið nú og þegar verkfallið byrjaði?
Albert: „Pabbi!“
Pabbi: *rumskar*
A: „Pabbi!“ *þrammar upp tröppurnar með látum*
A: „Pabbi!“ *kemur inn í svefnherbergi, að rúminu og potar varfærnislega í öxlina á pabba til að færa áríðandi tíðindi*
P: *umlar*
A: „Pabbi, Nellý og Nóra er sjónvarpið!!“
Baksaga: Aðspurður velur Albert alltaf Hvolpasveit. Í viðleitni minni til þess að auka fjölbreytnina í því sem pjakkurinn horfir á (og minnka líkur á að ég missi vitið), laumast ég af og til til að kveikja á barnaefni sem er aksjúallí skemmtilegt – mjög oft Hæ Sámur eða Nellý og Nóra – án þess að spyrja hvað hann vill.
Þess vegna ályktar hann (réttilega), að þetta séu uppáhalds þættirnir mínir