Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • eitthvað á þessa leið voru jólin okkar 🙂

    gleðilega jólarest! (þó seint sé í bossa klipið)

    Merry rest of Christmas everyone (better late than never!)

  • Stelpurnar og Ance sátu og pökkuðu inn gjöfum.

    Sandra: „Pabbi, við erum búin að pakka inn þremur pökkum!“

    Pabbi: „Vá, eru rosa margir sem fá pakka frá okkur?“

    S: „Já!“

    P: „Kannski fáum við einhverja pakka líka?“

    S: „Neinei! Við þurfum ekki pakka,“ sagði hún og benti á pakkana tvo sem þær systur gerðu á leikskólanum. „Við eigum pakka!“

  • Lang-sokkur?

    lína langsokkur, á sokk!?!!

    mind=blown!

  • þegar ég fór með stelpurnar í leikskólann í morgun var snjóbylur og skyggnið á bilinu 2-22 metrar, ég ákvað að fara bara heim og bíða af mér mestu lætin

    svo þegar ég var farinn að sjá yfir til Reykjavíkur ákvað ég að nú væri ekkert mál að skjótast. vegagerðin er ekki alveg sammála

  • Barney – íslenskt kvenmannsnafn?

  • jólapeysa

    ég vinn ekki ljótujólapeysukeppnina í vinnunni, en ef það væri jólasveinaderhúfuflottukeppni þá væri sigurður orðinn sigurviss

  • augnablikið þegar þú fattar að þú ert kominn 12 km frá leikskólanum og enn að hlusta á Latabæ

  • 1. ÁRGANGUR!!?

    VAR ÞETTA ALLTAF ÞARNA?? ÆTLA ÞAU AÐ GERA ÞETTA AFTUR?!?

  • Troðarar

    Í Japan eru troðarar á annatímum á lestarstöðvum. Þau eru í júníformi og með hanska