Eftir 5 mánuði af ströggli og stappi og vesini og böggi og japli og jamli og fuðri og allskonar var skálað fyrir afsali í gærkvöldi…

stuff that’s rehashed from social media
Ég fer þess á leit við þjóðina að hún veiti mér tilfinningalegt svigrúm á þessum erfiðu tímum

ég hef þetta stutt, það er fylgst með mér
ef ég reyni að laumast hingað til að hafa samband við umheiminn, kemur a.m.k. annar vörðurinn ef ekki báðir augnablikum síðar. það hefur ekkert að segja að finna þeim eitthvað að gera, þær finna samstundis á sér ef ég reyni eitthvað
eða svona er tilfinningin sirkabát að vera heima með tvær litlar dömur, aðra „veika“
Litli telminatorinn minn er auðvitað það krúttlegasta af öllu krúttlegu
En það lang-krúttlegasta af öllu er þegar hún klifrar sjálf ofan í baðkarið mjög spennt, en verður augnabliki síðar smeyk við litlu kusk-hnoðrana sem voru fastir milli tánna en losna um leið og þeir koma í vatnið og fljóta um og ógna henni