Category: social
-
Gott að vera krakki
Albert: „Það er gott að vera lítill krakki!“ Pabbi: *bráðn* A: „Ég er glaður að þú ert pabbi minn…“ P: *BRÁÐN!!* A: „…af því að þú leyfir mér alla hlutina“
-
Ég?
„Af hverju er ég ég?“ -sex ára heimspekingur
-
Af hverju?
Af hverju er ég ég? Sex ára heimspekingurinn sonur minn
-
Ég hafði mínar efasemdir um að áhugi Alberts, 6 ára, á perlum væri einlægur, en svo…
-
Ég: „Úps! Ég týndi símanum!“ Banki: „Opnaðu símaappið og lokaðu kortinu!“
-
Þegar vinur þinn er kominn í hvarf
-
Hvernig illt?
Albert: „Pabbi, mér var illt í hálsinum í dag“ Pabbi: „Æ, hvernig illt?“ A: „Ööö … réttu mér skólatöskuna!“ *gramsar í töskunni, tekur upp póstmöppuna, opnar hana, tekur út bókina sem hann er að lesa, flettir og grandskoðar síðu eftir síðu* „…eins og hnífsstunga!“
-
Líf
-
Milljón manns
Albert: *raular* „Þetta lag er svona: Savage love did somebody did somebody break your heart. Þetta er um milljón manns. Sem eru dauð.“ Pabbi: „Dauð?!?“ A: „Já, af því hjartað þeirra brotnaði“ Svo fylgdu langar umræður um hvernig hjörtu gætu brotnað og hvort hjörtu þyrftu aldrei að sofa
-
Flatus lifir
Keyrum framhjá Flatus lifir enn Albert: „Manstu að það var einusinni öðruvísi?“ Pabbi: „Já, ég man. Manst þú að við sáum konuna mála það upp á nýtt?“ A: ? „Hver gerði það fyrst?“ P: „Veit ekki! Enginn veit!“ A: „Jú! Sá sem gerði það veit! Pabbi þú ert stundum alveg ruglaður!“
-
Rigning
Albert: „Sjáðu pabbi, það er rigning úti, en enginn vindur!“ Pabbi: „Jaá?“ A: „Manstu þegar við vorum í dýragarðinum og ég vildi kaupa regnhlíf en þú sagðir að það væri ekki hægt að nota regnhlíf á Íslandi því það væri alltaf svo mikið rok“ Þetta var semsagt í gær og ég get enn ekki munað…
-
Á hjóli
s/o á gaurinn sem notaði tímann þar sem hann sat á hjólinu og beið eftir græna kallinum til að fýra upp í sígarettu