Tag: Telma

  • Telma (4,5 ára): „Af hverju stendur Palli piss í sjónvarpinu?“ Pabbi: „Haaa? Það stendur hvergi Palli …“

  • Rúsína?

    Pabbi: „Ertu rúsína?“ Telma: „Nei!“ P: „Ertu sykursnúðarúsínubollurass?“ T (grætur): „Pabbi, þú kallaðir mig rass!“

  • Mismæli

    trúðapiss mannveskja flottavél

  • Korpúlfsstaðir, Lágafellskirkja, Hallgrímskirkja (séð frá rótum Esjunnar) er meðal þess sem kallað hefur verið Frozen kastali

  • Telma: „Veistu af hverju þetta heitir níva pera?“ Pabbi: „Nei, af hverju heitir þetta hnífapör?“ T: „Af því að leikskólinn segir það!“

  • Telma er að flýta sér að verða stór og missti tönn í kvöld. Hún verður 5 ára 10. feb. (nema hún rumpi því af fyrir jól)

  • Hér eru tvær stelpur með lítil hjörtu sem standa fyrir framan sjónvarpið til að geta verið fljótar að forða sér inn í herbergi þegar spennan verður óbærileg í Línu Langsokk

  • Telma fékk hita um hádegi í gær. Svaf eiginlega allan daginn án þess að vakna mikið. Vaknaði til að gubba um fimmleytið í morgun. Svo var hún aftur orðin eldhress prakkari um hádegið. Núna getur hún ekki hætt að segja „sko“. Vitiði hvort eitthvað er að ganga?

  • Þegar veistu af hverju fólk varaði þig við hinu ógurlega fyrirbæri “outnumbered”

  • Kom heim og fann stelpurnar í eldhúsinu með ristaða brauðsneið, eins og dáleiddar en samt skríkjandi af gleði — að horfa á smjör bráðna

  • Stelpurnar (6 & 4,5 ára) á fyrstu skautaæfingunni Þær: meira á bossanum en uppréttar Ég: passa að þær sjái mig ekki veina af hlátri

  • Double trouble on the ice