Er heima með Telmu veika. Gaf henni kex. Á meðan hún maulaði á því setti hún upp heimspekilega vangaveltusvipinn: „Pabbi, er hauskex búið til úr haus?“
Hauskex„Neinei pabbi minn, ég get alveg smurt sjálf!“
Að spila hangman við 4 og 6 ára börn er athyglisverð skemmtun
Ekki hugmynd hvað Telma var að teikna, en ótrúlegt pepp í að fá broskall með hverjum réttum staf. Á endanum
Stelpurnar voru að fara að sofa og Sandra bað mig að syngja Gamla Nóa.
Pabbi: „Tja, það er reyndar ekki vögguvísa, en hvaða útgáfu? Keyrir kassabíl?“
Telma: „Er að fokka fokk“
Ég kann það reyndar ekki, en hún kvartaði ekkert þegar ég söng „er að poppa popp“
Þegar þú þarft að dobbla barnið til að skilja dúkkuna eftir í bílnum og lofa að hún sitji á koppnum/ bílstólnum í allan dag
Dúkka á kopp í bílstól
Útidyrnar voru opnaðar 4x á 5 mín.
Þegar ég athugaði kom í ljós að dæturnar höfðu fengið heilan herskara af ósýnilegum leynivinum í heimsókn
Gaf stelpunum kökubita. Sandra hámaði sinn í sig og byrjaði að væla og suða um meira meðan Telma maulaði í rólegheitum. Á endanum fékk Telma nóg af jarminu í stóru systur…
Telma: „Vá, þú ert bara komin með vælupest!“
„Eru ekki leiðpeningar?“
Telma reynir að átta sig á hvernig á að setja saman nýtt leikfang