Tag: siggi lagar stöff

  • Ofurhetja

    Þegar þú ert að reyna að bjarga gögnum af síma með svo illa brotinn skjá að það tekur 5 mínútur að opna hann með pinninu í hvert skipti og hálftíma að slökkva á pinninu og svo er ekki hægt að installa smart switch appinu sem færir allt yfir í bráðabirgða símann en einhvernveginn tekst þér það samt og þó það hafi tekið 3 tíma þá kláraðirðu það og þér líður eins og ofurhetju

  • Fataviðgerðir

    Fataviðgerðir siggamuss ehf.

  • Albert bendir: „Ljós virkar! Tvö ljós!“

    Pabbi: „Já, pabbi lagaði. Stundum lagar pabbi eitthvað … og allir verða voða hissa“

    A,: „Nei! Pabbi ekki laga! Slökkviðimaður lagaði“

  • Skrúfa

    Hún átti kannski ekki eftir mörg góð ár þessi

  • Trackpad á fartölvunni hættur að virka. Control panel. Fikt. Ekkert. Gúggl. Uppfæri drivera. Restart. Ekkert.

    Meira Gúggl. Driverar beint frá framleiðanda. Restart. Ekkert.

    Enn Gúggl. Ekkert.

    Þrír klukkutímar. Ekkert.

    Hmmm, hvað gerist ef ég ýti á þennan takka..?

  • Skipti um dekk á bílnum í hundslappadrífu og líður eins og ég hafi smíðað geimflaug og farið á henni til mars

  • þetta virtist vera svo góð hugmynd þegar ég fékk hana

    Þegar þú ert búinn að skrúfa bakhliðina af með topplyklasettinu sem pabbi þinn gaf þér í jólagjöf fyrir þremur árum, lýsa vongóður inn í myrkrið með vasaljósi og pota í allskonar og setja upp sona svip sem þú heldur að alvöru þvottavélaviðgerðarmenn setji upp og verða gauðskítugur á putunum og hrista tromluna eins og þú getur, upp og niður, út og suður og sjá demparana dempa og hristir svo hausinn og yppir öxlum og skrúfar bakhliðina aftur á og athugar slönguna og snýrð tromlunni innan frá og hristir og setur aftur upp svip og tengir allt aftur og setur vélina í gang, en „jedúddamía! það kemur ekkert vatn!“ og vera búinn að bæta spekingslega við „hmmm, ætli vatnsdælan sé biluð?“ þegar þú fattar og hleypur skríkjandi eins og smástelpa og skrúfar frá vatninu og það kemur loksins vatn, en hérna … ööööö … á vatnið að buna út um þvottaefnishólfið og niður á gólf?

  • Úbbs

    Ég smíðaði moltukassa

  • Þegar það tekur þig 2 daga að losa stíflu í þvottahúsinu, því fyrri eigandi setti hilluvegg OFAN á niðurfallið

  • Útiljós!

    Enn eitt dæmið um það sem ég sagði við konuna um daginn; ef ég segist ætla að gera eitthvað, þá geri ég það. Þú þarft ekki að minna mig á það á sex mánaða fresti…

    Light outside! Yet another fine example of what I said to the wife the other day; if I say I’ll do something, I’ll do it. You don’t need to remind me every six months…