











Sandra segir tannlækninum frá skólanum: „Það var svona kynning og allir áttu að segja hvað þeir heita og hvað er uppáhalds maturinn þeirra.“
Tannsi: „Jahá! Og hvað er uppáhalds maturinn þinn?“
S, sem ég hélt ég gæti ekki elskað meira: „Steiktur laukur!“
með Ferðafélagi barnanna
Pabbi: „Jæja stelpur, hvað eigum við að gera skemmtilegt í dag?“
Sandra: „Þú verður að velja eitt: Annað hvort að borða ís eða fara út í búð að kaupa tyggjó.“
Pabbi: „Jæja stelpur, hvað eigum við að gera skemmtilegt í dag?“
Stelpur: „Þú verður að velja eitt: Annað hvort að borða ís eða fara út í búð að kaupa tyggjó.“
Börnin mín eru geggjuð og æðisleg og frábær og best í heimi og ég elska þau út af lífinu, en ég byrja að vinna aftur eftir 46 klukkutíma og 41 mínútu
Þekkjandi mínar dömur var ég ekkert að flýta mér í sturtunni og klæddi mig í rólegheitum í fötin eftir sund í Klébergslaug. Beið svo dágóða stund fyrir utan kvennaklefann.
Pabbi: „Ööööö, hvernig gengur þarna inni?“
Telma: „Bara vel, við erum enn í sturtu! En ég kann núna að flossa!“
Pabbi: „Stelpur, ef þið eruð svona óþekkar slekk ég aftur á sjónvarpinu og þá þurfið þið að sitja og telja á ykkur tærnar“
Barn: „Pabbi, við vitum alveg hvað við erum með margar tær!“
Gerðum víkingabrauð niðrí fjöru í Norðurfirði
Fórum í ferð með Ferðafélagi barnanna
Sandra: „Má ég fá símann?“
Pabbi: „Nei, held það sé komið nóg af síma í dag“
Sandra: „Heyrðu pabbi, þú ert sjálfur í símanum allan daginn“
Telma: „Já, meira að segja á klósettinu!“