Tveir tímar úti að leika við börnin mín og mér finnst ég verðskulda fálkaorðu
Tag: life
-
Hávaði
Þegar þú gleymir kóðanum að öryggiskerfinu og situr hnípinn og dapur í dómadagshávaða meðan Securitas gengur úr skugga um að þú sért þú
-
Hvíl í friði
Hvíl í friði, Ólafur
RIP Olaf

Jarðneskar leifar Ólafs
Olaf’s earthly remains
Jarðneskar leifar Ólafs
Olaf’s earthly remains -
Óveður
Skutlaði Söndru í afmæli rétt í þessu, og á leiðinni heim virti ég fyrir mér eyðilegginguna sem veðurhamurinn hefur valdið. þá fyrst gerði ég mér grein fyrir hversu svakalegt þetta hafði verið. Þarna lá yfirbreiðsla af kerru eins og hráviði í alsaklausum runna og mér varð hugsað til kerrunnar sem nú stendur einhversstaðar, alein og óvarin
Því langar mig að spyrja hvort ekki sé eitthvað sem við getum gert fyrir fólk á þeim svæðum sem verst urðu úti. hvað vantar ykkur mest? Mat? Hlý föt? Hreint Vatn? Rafmagn? Fötur?
-
Stuð í strætó
#1
Farþegi gefst upp eftir smá bið og lokar afturhurðinni með handafli – á ferð. Tók smá stund og soldið afl.
#2
Vagnstjórinn fær 50 stiga bónus fyrir að ná spegli af bíl í hringtorgi.











