Tveir tímar úti að leika við börnin mín og mér finnst ég verðskulda fálkaorðu
Tag: life
-
Hávaði
Þegar þú gleymir kóðanum að öryggiskerfinu og situr hnípinn og dapur í dómadagshávaða meðan Securitas gengur úr skugga um að þú sért þú
-
Jólin
Jólin gleymdu einhverju

-
Robin Hooding
with work



From 18 metres 
Bows -
Hvíl í friði
Hvíl í friði, Ólafur
RIP Olaf

Jarðneskar leifar Ólafs
Olaf’s earthly remains
Jarðneskar leifar Ólafs
Olaf’s earthly remains -
Óveður
Skutlaði Söndru í afmæli rétt í þessu, og á leiðinni heim virti ég fyrir mér eyðilegginguna sem veðurhamurinn hefur valdið. þá fyrst gerði ég mér grein fyrir hversu svakalegt þetta hafði verið. Þarna lá yfirbreiðsla af kerru eins og hráviði í alsaklausum runna og mér varð hugsað til kerrunnar sem nú stendur einhversstaðar, alein og óvarin
Því langar mig að spyrja hvort ekki sé eitthvað sem við getum gert fyrir fólk á þeim svæðum sem verst urðu úti. hvað vantar ykkur mest? Mat? Hlý föt? Hreint Vatn? Rafmagn? Fötur?
-
Kósítæm

Úti er alltaf að snjóa

-
það var soldið eins og að fara í gegnum risastóra bílaþvottastöð að keyra í vinnuna í morgun. þetta er gígantísk bílaþvottastöð – stærsta bílaþvottastöð í heimi!
en ég er eiginlega að vona að veðrið haldist nákvæmlega svona þartil ég fer heim því hún þvær bara hálfan bílinn
-
Stuð í strætó
#1
Farþegi gefst upp eftir smá bið og lokar afturhurðinni með handafli – á ferð. Tók smá stund og soldið afl.
#2
Vagnstjórinn fær 50 stiga bónus fyrir að ná spegli af bíl í hringtorgi.
-
Ólafur

hæ Ólafur!

hey, Olaf!
-
Lítill api
einn lítill api situr út’í bíl
hann er að stríða krókódíl:
‘þú nærð ekki mér’

