svona. líður mikið betur

svona. líður mikið betur
Eftir að ég endurnýjaði tannburstann í gær áttaði ég mig smám saman á því að ég er búinn að nota barnatannbursta í 2 mánuði
uppfært:
klaufinn ég hafði ekki rænu á að taka mynd áður en ég setti það saman
Hvernig á maður að geta sofið rólegur í vinnunni vitandi af einhverjum síkópata sem stillir á 6?
Bruninn í Breiðholtinu var í íbúðinni við hliðina á afa. Það er allt í lagi með hann, þetta uppgötvaðist frekar fljótt, m.a. af því rafmagnið fór af.
Slökkviliðið var komið strax og það tók ekki langan tíma að slökkva eldinn. Ég heyrði í gamla og hann er bara hress. Afþakkaði áfallahjálpina pent
Fór í göngutúr í gærkvöldi og mætti stórum hóp af hælisleitendum.
En í staðinn fyrir að stela af mér vinnunni, kveikja í mér og nauðga sögðu þeir bara kumpánlega “Hello!”
Er í útlandi fram á þri og til að forðast Ófærðar spoilera mun ég nú uninstalla Twitter, taka batteríið úr símanum og éta það
Áramótaheit 2013 2014 2015 2016: Stofna Facebook grúppu fyrir procrastinatora
What does the frog say?
Það er til marks um framúrskarandi þjónustu þegar er hattur á klósettinu
þegar dætur þínar eru búnar að hirða öll flottu sólgleraugun
when the girls have taken all the cool sunglasses…
Ég byrjaði að vinna hér í febrúar 2009. Ég man mjög vel að fyrsta eða annan miðvikudaginn sem ég vann var ofboðslega kalt – snjór og hálka. Ég man líka mjög vel að þegar ég kom hikandi og feiminn inn í matsal í hádeginu voru mjög margir í flís- og lopapeysum, og sumir þeirra börðu sér til hita. En það sem ég man best er að það voru líka nokkrir sem sátu þar á stuttermabolum og það stóð upp af þeim gufan – bókstaflega. Þau voru víst að koma úr sjósundi
Í dag, rétt tæpum 7 árum síðar, var ég á stuttermabol í hádeginu