Höfum náð heraga í morgunrútínuna

tilboð sem er ekki hægt að hafna

PS: hversu létt sem þessi danssveifla kann að vera þarf meira en 48 tíma til að ég og mínir 3 vinstri fætur nái henni
Þar sem ég var úti að hlaupa* og hlusta á nýju PJ Harvey plötuna fór ég að hugsa um Ivan Pavlov. Ef ég er bara búinn að hlusta á plötuna við þessar aðstæður, verður þá til sú skilyrðing að ég tengi þessi frábæru lög um alla framtíð við sársauka, pínu, svita, andnauð og almenna vanlíðan? Mun þetta eyðileggja fyrir mér tónleikana 6. nóvember?
(*Ef hlaup skyldi kalla. Trúi því ekki sjálfur, en ég var að klára viku 2 af C25K. Ég er búinn að „hlaupa“ meira á síðustu 2 vikum en á sl. 20 árum þar á undan. Vúpp vúpp!)