Íbúðin er tönn í munni Jens og við veika Telma Karíus og Baktus
Tag: life
-
Sigur andans yfir efninu (les: sigur þrjóskunnar yfir letinni)
Ég fór semsagt frá því að vera sófahjassi par exelans í að verða týpan sem vaknar kl. hálfátta á sunnudagsmorgni til að „hlaupa“ í niðamyrkri á Ísafirði áður en ég bruna heim í höfuðborgina. Og týpan sem hættir ekki þegar slydduhaglið rennbleytir vinstri hliðina á honum, heldur fer bara aðeins aðra leið en venjulega, með skvampið í skónum í hverju skrefi
Og þetta tók bara þrjá fokkings mánuði
-
Pínulítið
Annað hvort er hundur nágrannans kominn með ljós í ólina eða það var pínulítið geimskip að brotlenda fyrir utan gluggann hjá okkur
