Tag: life

  • Segir mögulega eitthvað um hversu tígulega ég hleyp að fyrr í dag lögðu tíu hross niður vinnu í dágóða stund til að góna á mig

  • Hár

    Egill Helga: *er í sjónvarpinu*

    Sandra. „Er þetta alvöru hár??!“

    Pabbi: *reynir að flissa ekki*

    S: “Þetta lítur út eins og frosið gras!“


    Uppfært 9. júní 2017:

    Haukur Hólm: *er í sjónvarpinu*

    Sandra: „Pabbi, er þetta alvöru hár?“

  • Fiskur í raspi búinn.

    Pabbi: „Nei, ástin mín, þú mátt ekki fá eintómt remúlaði!“

    Barn: „En ég ætla líka að fá mér kartöflur!“

  • Brýna hníf

    „Á ég að brýna þennan hníf fyrir þig?“

    „Já takk. Gætirðu haft hann eins beittan og fyrstu tvær tennurnar í syni mínum?“

  • æ am nott sörpræs jú dú nott önd?’stand mi. æ úvill træ tú spík mor slólí

  • Reiðskjótinn í dag er vel hærður

  • Þegar þú heldur á ungabarni sem gubbar, en góð og vel staðsett bumba bjargar buxunum alveg

  • Ekki matur

    Erum að æfa frumsamið lag fyrir næsta tíma í ungbarnasundi: „Kennarinn er ekki matur“

  • Þegar þú ert að labba í gegnum IKEA og lífsviljinn fjarar út og þú tönnlast á því í hausnum á þér að þig virkilega vanti það sem þú ætlar að kaupa og það sé ekki í boði að gefast upp og deyja og parið fyrir framan þig sem segir um eina útstillinguna „Nei, þetta er nýtt!“

  • Konan vill ekki segja hvað ég gerði af mér. Segir bara að ég verði að fara í IKEA

  • Í vinnunni geng ég fram á týndan ungan dreng.

    Ég: „Ertu týndur? Hvað heitir pabbi þinn?“

    Tud: „Pabbi minn!“