Tag: life

  • Gaurinn sem er búinn að vera að lakka þröskulda í vinnunni í allan dag er með heyrnarhlífar en ekki grímu

  • Þegar kötturinn er að heiman leika mýsnar sér

    Hér eru allir kettir að heiman og músin svaf. Svaf frá 21.30-8.00

  • Minn strætó er með belti, m.a. nokkur þriggja punkta

  • Minn strætó er með snyrtingu

  • Bað

    Nú er kjörið að rifja upp að Viktoría drottning sagði víst: „Ég fer í bað í hverjum mánuði — hvort sem ég þarf þess eður ei!“

  • Strákar gráta ekki

    Strákur (ekki minn): „Strákar gráta ekki! Pabbi minn segir það!“

    Stelpa (mín): „Júhúts! Þegar amma dó þá grét pabbi minn sko!“

  • Fjögurra laufa smári

    Trölla


    Barn: „Fjögra Smáralind!“

  • Keypti náttúrulegan kattasand.

    Sem er úr kögglum sem verða að dufti ef þeir blotna.

    Svo reyni ég að tæma og bara fokkings duftið verður eftir

    Kattasandurinn sem þjónar ekki tilgangi sínum
    Kattasandurinn sem þjónar ekki tilgangi sínum
  • Eftir áralangar rannsóknir hef ég komist að því hvað er verra en að stíga á legókubb

    Þurfti smá átök til að ná þessu úr hælnum

  • Minn strætó er með hjólagrind

  • Ævintýri í strætó

    i

    Voru nokkuð hanskar þegar þú settist? Þett’er sko sami vagn og í morgun“

    „Nei“

    Spyr næsta „Nei, þú sast þarna, ekki hér!“


    ii

    Einhver horfir á rússneska bíómynd í símanum. Hefur ekki efni á heyrnartólum greyið


    iii

    Alltaf lærir maður.

    Það er hægt að fá Bamboleo sem hringitón

  • Ég elska vinnuna mína