Stundum þegar þreyta og sljóleiki gerir vart við sig síðdegis er ég ekki alveg viss hvort það er vegna loftleysis á skrifstofunni, almenns svefnleysis eða hvort þetta er bara lífsviljinn að fjara hægt út
vinnufélagi á afmæli í dag og ákvað þess vegna að refsa okkur
Hákarl
sooooldið hált í morgun
það var ekki alveg svona tígulegt þegar ég flaug á hausinn (ok, bossann
Kominn á leiðarenda, en finnst þetta svo mikil sóun. Er að spá í að fara lengra
Farmiði
Rannsóknir sýna að jafnvel heimsklassa íþróttamenn hafa ekki úthald í að halda í við tveggja ára barn í heilan dag
Þið getið rétt ímyndað ykkur hvort vansvefta feitabolla á miðjum aldri á einhvern séns
Að hengja upp þvott: 3-6 mín.
Að hengja upp þvott með dyggri aðstoð eins árs hjálparhellu: 30-60 mín.
Ég við dætur mínar: (5 & 7 ára) „Úff! Ég held þið tvær séuð frekustu börn í heimi!“
Sonur (1,34 ára): „Heyrðu gamli, haltu aðeins á bjórnum mínum“