Eftir að ég byrjaði að grisja auglýsingar á fb mjög grimmt stend ég mig af og til að því að vilja fela sjónvarpsauglýsingar
Tag: life
-
Hvolpasveit
Hef orðið fyrir miklum og sárum vonbrigðum með Hvolpasveit undanfarið. Viku eftir viku koma þættir um drauga, dreka, geimverur og nú einhverja fokkings hafhvolpa?
Þessir þættir eru gersamlega að missa öll tengsl við raunveruleikann!
-
Peysur
Yfir sjónvarpinu:
Barn: „Hvar er þetta?“
Pabbi: „Á Norðurpólnum!“
Barn: *djúpt hugsi* „Hvað er hann í mörgum peysum?“
-
Kaffibolli
Hef lýst því yfir að ég muni hætta að drekka kaffi þegar þessi fer

Kaffibolli með flottum dreka 
Kaffibolli með flottum dreka (mun auðvitað aldrei standa við það, en svona hádramatískar yfirlýsingar telja samt, ha?)






