

Trackpad á fartölvunni hættur að virka. Control panel. Fikt. Ekkert. Gúggl. Uppfæri drivera. Restart. Ekkert.
Meira Gúggl. Driverar beint frá framleiðanda. Restart. Ekkert.
Enn Gúggl. Ekkert.
Þrír klukkutímar. Ekkert.
Hmmm, hvað gerist ef ég ýti á þennan takka..?

Klemmdi taug í baki fyrir viku. Taugin losnað loksins, en restin af bakinu er í tómu djöfuls fokki. Ef ég sit lengur en fimm mínútur er ég eins og níræður kall á biðlista eftir mjaðmaskiptiaðgerð þegar ég stend upp aftur og kjaga af stað
Fyrsti espresso-bollinn eftir magakveisu vekur upp sérkennilega blöndu eftirvæntingar og kvíða
Nefndi þetta við vinnufélaga til margra ára.
Vtmá: „Þú hefur ekki hugleitt að sleppa bollanum? Svona fyrst þú ert orðinn clean?“
Ég: *rétti út höndina* „Sæll, Sigurður heiti ég mús. Við höfum augljóslega aldrei hist“
Ég er ekki að segja að ég sé latur, en ég var eiginlega feginn að diskurinn sem Telma braut var einn af þeim sem ég átti eftir að vaska upp
Nuddarar: Af hverju tekur okkur enginn alvarlega? Við getum á einfaldan hátt hjálpað svo mörgum að líða betur!?!
Líka nuddarar: Ó já, svo þegar þú ert búin í nuddi geturðu fengið höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð og osteópatíu og bowen og allskonar kukl og hókus pókus!