Tag: life

  • Sjáðu

    Barn: *horfir á einhverja þrautleiðinlega bíómynd* „Sjáðu pabbi, pabbi sjáðu!“

    Pabbi: *horfir*

    B: „Sjáðu pabbi, pabbi sjáðu!“

    P: *horfir*

    B: „Sjáðu!“

    P: *blikkar*

    B: „PABBI! HORFÐU ALLAN TÍMANN!“

  • Forráðamenn MS og SS: ?

    Ég: „Þið eruð eflaust að velta fyrir ykkur hvers vegna ég boðaði ykkur á minn fund, en þannig er mál með vexti að ég sé frábær tækifæri í sameiningu fyrirtækjanna, ekki síst í nýjungar í pylsugerð“ *sýnir skilti sem á stendur: „Emmessessess Skyrbjúgu!“

  • Sprek!

    Nýja uppáhalds lagið mitt:

    Sprek, sprek, sprek, sprek!
    Sprek, sprek, sprek, sprek!
    Sprek, sprek, sprek, sprek!
    Spreki spreki sprek sprek!

    Hæ Sámur

    Sandra (átta ára) kveikti á nýjasta þættinum af Hæ Sámur áðan og horfði svo bara á mig til að sjá viðbrögðin

  • Náttúrulífsmyndir

    Ljón veiðir gasellu: Ó nei, hjarta mitt springur! Getur ekki einhver bjargað vesalings dýrinu?!

    Hvalur á stærð við strætisvagn gúffar í sig 100kg af síld í einum munnbita: Vá hvað þetta er falleg sjón!

  • Rannsóknir

    Hafa verið gerðar rannsóknir á tíðni slysa af völdum snúruinndragara á ryksugum?

  • Þegar þú átt cheap ass, latan og almennt bara ömurlegan pabba sem samþykkti loksins að hafa hamborgara, en fannst í lagi að bjóða upp á þetta sem franskar

  • Rafræn skilríki

    Að leiðbeina 93 ára gömlum pabba sínum um notkun rafrænna skilríkja í gegnum síma er góð skemmtun.

    Ég: „Ertu með farsímann?“

    Pabbi minn: „Já“

    Ég: „Ok, ég ýti á takkann, og þá koma skilaboð í símann. Svo slærðu inn pin númerið“

    Pabbi minn: „Bíddu, ég ætla að sækja farsímann!“

  • Poesi!

    Herregud Elling! Du har begått poesi!

    Elling
  • þreyttur og þreyttari

    tired and more tired

  • Veikindi

    Eðlilegt, skynsamt fólk: Er veikt þegar allir hinir í fjölskyldunni eru í vinnu/ skóla/ leikskóla og horfa á hvað sem þau vilja

    Ég: Er veikur á sama tíma og börnin mín og horfi á þau horfa á Hvolpasveit, Dótu Lækni og Ávaxtakörfuna

  • Mér verður illt í hausnum