Tag: life
-
Tár
Ég mun ekki svara þrálátum orðrómi um að það hafi verið komin tár áður en ég áttaði mig
-
„Eigandi bílsins segir þetta einskæra tilviljun“
-
team „fráhverfar tvíklær misstæðar“ https://www.arnastofnun.is/is/utgafa-og-gagnasofn/pistlar/gaesalappir-um-utlit-tilvitnunarmerkja-i-islensku
-
Bát
Ég negli og saga og smíða mér bát og síðan á sjóinn ég sigli með gát
-
Ég: „Helvítis fokking fokk! Þetta verkfall á aldrei eftir að leysast!“ Líka ég: „Svona svona, horfa á björtu hliðarnar, annars verðurðu þunglyndur!“ *fimm mínútur* Líka líka ég: „tjah … það eru bara tvö ár þar til hann byrjar í skóla..?!“
-
Erfitt pilla
Á fb: „”C” orðið er erfitt pilla að kyngja!!“ Svo kemur laaaaangur, illa þýddur pistill, sem inniheldur:
-
Samviskuspurning
Samviskuspurning til foreldra með leikskólabörn heima vegna verkfalls: Elskarðu börnin jafn mikið nú og þegar verkfallið byrjaði?
-
Ugla!
Það lenti brandugla í garðinum hjá okkur (að sjálfsögðu í dag, þegar gluggarnir eru óhreinir eftir rokið í gær ) Ég stökk að ná í góðu myndavélina. Ég lagði myndavélina frá mér augnablik til að sinna krakkaskröttunum (takk krakkar!) og einmitt þá tók ég eftir því að uglan var með mús í goggnum!! Meðan ég…
-
Í vinnunni
Loksins aftur í vinnunni Ég: *gengur illa að komast í gang* Ég: Ég: *set á mig heyrnartól, fer á jútjúb, kveiki á Hvolpasveit* Ég: *vinn eins og ég sé þrír*
-
Björgunarafrek
Björgunarafrek dagsins
-
Selurinn Snorri
-
50 m/s
Ef myndirnar prentast vel má sjá hvernig púlsinn hjá mér rýkur upp í fullkomnu flútti við hviðurnar sem fóru yfir 50m/s Við síðari hviðuna (sem drap mælinn ) hoppaði Telma upp úr rúminu og kom skríkjandi til okkar. Þá voru allir vaknaðir nema Albert og við ákváðum að flýja dómadags hávaðann (og stóru stóru rúðurnar)…