Tag: life
-
Traust
Ég verð að segja að mér finnst það nú ekki mjög traustvekjandi að sjá auglýsingu fyrir heita potta og það er enginn sem segir bæng!
-
Vigdís
Ég á enga mynd af mér með Vigdísi, en þegar Ólafur Ragnar kom í opinbera heimsókn í Gerðuberg var litli frændi minn þar og reyndi að betla af honum pening fyrir nammi
-
Það verður að viðurkennast að mér gengur hreint bölvanlega að muna að Svasíland heitir núna Esvatíní og Svaslendingar Esvatínímenn
-
Minning
Nýbyrjaður í markaðsdeild fyrirtækis. Fékk bréf frá frkvstj. til yfirlestrar. Lagaði innsláttarvillur — og tvö bil eftir punkta — sendi til baka. Eftir tvær mínútur hringir borðsíminn eins og erindið sé áríðandi. Frkvstj, hvass: „Við skulum hafa það á hreinu góði minn að ég er yfir-prófarkalesari fyrirtækisins !“ „Svona eru bara reglurnar !“ bætti hann…
-
Merktur
Börnunum fannst ástæða til að merkja gamla Ástkær eiginkonan: „Hérna, þú hefur yngst um tíu ár…“ Ég: *skoða* „Ööööö, síðan hvenær er kveikt á þessum bjútífílter“ *roðna oní rass* Öll fjölskyldan: *dansar um og syngur hástöfum*: „PABBI VAR MEÐ BJÚTÍFÍLTER!! PABBI VAR MEÐ BJÚTÍFÍLTER!!“
-
Páskaegg
Frændi minn faldi einu sinni páskaegg fyrir kærustuna áður en hann fór í vinnuna. Hún leitaði, en fann ekki eggið áður en hún þurfti að fara í vinnuna. Fann eggið loksins seinnipartinn. Í gasgrilli á yfirbyggðum svölum sem sneru í hásuður í glampandi sól
-
Hryllings-örsaga
Heilbrigður og saklaus maður fer í búð, en þar sem hann stendur með fulla kerru af eintómum nauðsynjum – röðin alveg að koma að honum! – svelgist honum á, fær langt hóstakast og er tættur í sundur af örvingluðum múg. Endir
-
Snjór
Kannski ég verði bara heima í dag…
-
Skemmtilegur dagur?
Heimakennari: „Jæja ástin mín, látum okkur sjá! Verkefni dagsins er … að skrifa um skemmtilegan dag!“ Barn: „Ég skil ekki..? Hvað er það?“
-
Fór í gallabuxur og sokka til að fara í búð fyrir pabba gamla. Sokka! Leið eins og ég ætti að gifta mig
-
Nóg til af þurrgeri í Krónunni svo ég tók nokkur bréf til öryggis. Ég: *bíbba eitt bréf, hendi á pokasvæði* Sjálfsafgreiðslukassi: Ég: Sak: Ég: Sak: Ég: Sak: Ég: *tek þurrger af pokasvæði, hendi með látum á pokasvæði* Sak: „Skannaðu strikamerki eða leitaðu að vöru“
-
Úps
„Úps pabbi!“