Tag: life

  • Albert: „Pabbi, af hverju eru ský?“

    Pabbi: „Skýin eru búin til úr vatni sem er að bíða eftir að koma niður aftur!“

    A: ? „Og þegar skýin þurfa að pissa, þá kemur rigning!“

  • Þegar þú ert að tala við aldraðan afa barnanna í síma og getur ekki komið í veg fyrir vitleysuna með aðal uppeldisaðferðinni þinni: öskra á börnin


    Þetta var bara mjólk, en hann kláraði síðustu fernuna í matarboð fyrir ósýnilegu vini sína.

    Svo setti hann þetta í ísskápinn og kom á fimm mínútna fresti og fékk sér pínulítinn sopa úr glösunum til skiptis

  • Skrifa bækurnar sem enginn les


  • Mæl þú manna heilastur, Benedikt Erlingsson, ú á ættarnöfn, áfram viðurnefni!

  • Beðið eftir Húgó

  • Dagbók

    Kl. 07.30

    Starfsdagur í leikskóla/ skóla? Vinna heima, einn með þrjú börn? Iss piss! Eftir leikskólaverkfall og lockdown síðasta vetur er ég fær í flestan sjó!

    Kl. 8.30

    Æ já, það var enginn hvolpur síðasta vetur

    Kl. 10.30

    Bíddu, þagnar drengurinn aldrei?

    Kl. 13.30

    Obbsíbobb, ég var búinn að gleyma þessum Teams fundi, en sem betur fer erum við bara tveir…

    Kl. 13.34

    Telma öskrandi eins og stunginn grís eftir að klemma höndina og Albert stunginn af með þráðlausu heyrnartólin að spjalla við Texas-búa á Teams

  • Við viljum okkar kartöflur tandurhreinar, og þess vegna setjum við þær á suðuprógrammið

  • Þegar bara helmingurinn af eyrunum þínum eru komin upp

    /When only half of your ears are pointy

  • Fataviðgerðir

    Fataviðgerðir siggamuss ehf.

  • Ímyndaður nágranni: „Voruð þið að fá ykkur hvolp?“

    Ég: „Já!“ ? ?

    ÍN: „Og um tvöleytið í dag … hérna … varstu nokkuð að reyna að slíta af honum útlim?“

    Ég: „Neeeee, ég fór í sturtu…“

  • Hér eru allir dauðuppgefnir eftir langan dag, ekki síst þessi litli kútur, hann Húgó Hrói, sem virðist líka nýja heimilið ágætlega, þó það séu stundum soldil læti

    /everyone is dead tired here after a very long day, especially this little guy, who appears to approve of his new home, even if it gets a bit noisy at times

  • Brotnaði hitamælir hjá okkur í kvöld og vitiði — kvikasilfur er einn sérstakur andskoti.

    Beið eftir að allir litlu droparnir söfnuðust saman í einn stóran dropa og upp risi pínulítill en miskunnarlaus T-1000