Hvern tölum við við um að gera rannsókn á því þegar 370 þúsund manns fá taugaáfall á sama klukkutíma?
Tag: life
-
Rugl
Ég var að setja kaffi í pressukönnuna þegar Ance kom og fór að tala við mig. Ég ruglaðist og þurfti að byrja aftur að telja og nú er hún að hlæja að mér
-
Dýralíf
Í næsta nágrenni við vinnuna er fjölbreytt dýralíf, sem sjá má í sporum í snjónum. T.d.
Krummar

Krummaspor í snjónum Kanínur

Kanínuspor í snjónum 
Kanínuspor í snjónum Voffar

Voffaspor í snjónum Ekki krummar, en samt fuglar

Ekki-krumma-en-samt-fuglaspor í snjónum Mýs

Músaspor í snjónum -
Hlaðvarp
Var að fá tips um hlaðvarp og bætti nýjasta þættinum í biðröðina … það er númer 25 í röðinni. Ég þarf semsagt að hlusta í rúma 30 klukkutíma áður en kemur að því.
Ég mun koma gersamlega af fjöllum þegar þátturinn byrjar
Það er frábært að hafa ekki þurft að fara í vinnuna í vetur, en það hefur af mér megnið af hlaðvarpstímanum
-
Djöflasýra
Bíddu er þessi djöflasýra búin að vera í gangi í fimmtíu fokkings ár?!?!

Skjáskot úr bíómyndinni Fever Pitch sem sýnir að djöflasýran Clangers hafi verið í sjónvarpinu 5. febrúar 1972 
Djöflasýra -
Ormar Þormar
Tæknilega væri semsagt hægt að heita Ormar Þormar

Uppfletting í mannanafnaskrá sem leitar að „ormar“ 
„Ormar“ og „Þormar“

