Stundum róar Sandra sig með því að teikna eitthvað…


Úti að labba með Albert á hjóli og Húgó í taumi
Það gekk ekki aaaaalveg eins og í sögu og ég var aðeins að byrja að pirrast þegar Albert stoppaði, leit á mig, brosti og sagði: „Mér finnst gaman í lífinu mínu!”
Ég held ég hafi fengið eitthvað í augað

a compliment pic.twitter.com/d6J4GCvGO5
— poorly drawn lines (@PDLComics) March 16, 2022
Sæki Albert á leikskólann
Pabbi: „Húfan þín er rennblaut! Hvað gerðist eiginlega?“
Albert: „Það var svona vatn sem lak niður og við vorum að standa undir og gera svona“ *hallar aftur höfðinu, galopnar munninn og sýnir hvernig vatnið lak inn í munninn*
P: *finnur gegnblautan bol* „Blotnaði bolurinn líka svona?“
A: „Nei. Við tókum húfuna af og stóðum undir og létum renna á hárið!“ *sýnir eins og hann sé í sturtu*
“Conspiracy theory is how idiots get to feel like intellectuals”

One more time: pic.twitter.com/DpjvObs5gF
— David Baddiel (@Baddiel) March 3, 2022
Erfiðar umræður við börn í kvöld um stríð, frjálsar kosningar, frjálsa fjölmiðla og vonda kalla sem segja öðrum að drepa, þó það sé bannað að drepa 🙁
Stysti göngutúr í heimi, við Húgó vorum úti í rétt tæplega sex og hálfa mínútu. Samt nógu langur til að blotna í gegnum regnbuxurnar ![]()

Þegar þú sérð tvít um Sigue Sigue Sputnik, ferð að hugsa um Love and Rockets og rankar svo við þér á youtube að hlusta á Bauhaus